Erlent

Rappari sem trónir á vin­sældar­lista Sví­þjóðar grunaður um aðild að morði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Yasin er grunaður um aðild að morði.
Yasin er grunaður um aðild að morði. youtube

Sænski rapparinn Yasin Abdullahi, sem grunaður er um morð, trónir á vinsældalista Svíþjóðar á streymisveitunni Spotify. Yasin, sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Yasin Byn, er nú í haldi lögreglu vegna gruns um aðild að morði á fyrrverandi vini hans. Frá þessu er greint á sænsku fréttastofunni The Local.

XO, lag Yasin sem trónir nú á toppi vinsældalistans, fjallar um áhrifin sem hann finnur fyrir af því að drekka Rémy Martin koníak og reykja kannabis á jákvæðan hátt.

Samkvæmt dagblaðinu Expressen var Yasin handtekinn þann 30. desember síðastliðinn eftir að 20 ára gamall maður fannst stórslasaður í Rinkeby hverfinu í útjaðri Stokkhólms. Hann hafði hlotið byssuskot í höfuðið. Maðurinn, sem var eitt sinn mjög náinn vinur Yasin, lést síðar um kvöldið.

Rapparinn er með meira en 640 þúsund mánaðarlega hlustendur á Spotify og fegra og upphefja flest lögin hans vímuefnanotkun, ofbeldi og glæpi skipulagðra glæpahópa. Lögin hans hafa verið spiluð meira en fimmtíu milljón sinnum á streymisveitunni.

Auk þess að hafa notið nokkurrar velgengni sem rappari er hann einnig talinn vera leiðtogi Shottaz, sem er skipulagður glæpahópur sem heldur sig til í Rinkeby hverfinu. Í einu lagi sínu hreykir hann sér af því að hafa notað ólögleg vopn. Textinn hljóðar nokkurn vegin svona upp á íslensku: „Ef ég sit í bíl eru minnst tvær Glock [byssur] aftur í. Það er erfitt að drepa Yasin Byn.“

Yasin er einn sjö ungra manna sem handtekinn var í tengslum við morðið. Tveir þeirra voru fljótlega leystir úr haldi og tveir til viðbótar eftir að þeir fóru fyrir dómara á föstudag. Yasin og tveir menn til viðbótar eru enn í haldi vegna gruns um morð.

Shottaz hefur háð hatrammt stríð við keppinaut sinn, Dödspatrullen, og hefur stríði þessara tveggja glæpahópa verið kennt um tvöfalt morð sem framið var í Kaupmannahöfn í júlí síðastliðnum.

Yasin hefur þrisvar sinnum hlotið dóm vegna fíkniefnabrota síðan 205 og var árið 2018 dæmdur í rúmlega tveggja ára fangelsi eftir að hann var stoppaður af lögreglu í Bromma í Stokkhólmi. Þar var hann í bíl með manninum sem var myrtur í síðustu viku og höfðu þeir undir höndum tvær ólöglegar byssur, létta vélbyssu og hálf-sjálfvirka skammbyssu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×