Sport

Í beinni í dag: Undan­úr­slit á King Power og stór­leikur í Domin­os-deild kvenna

Anton Ingi Leifsson skrifar
KR spilar mikilvægan leik á heimavelli í kvöld.
KR spilar mikilvægan leik á heimavelli í kvöld. vísir/bára

Tvær beinar útsendingar eru á sportrásum Stöðvar 2 í kvöld.

Leicester og Aston Villa mætast í síðari undanúrslitaleiknum í enska deildarbikarnum en í gær fór Manchester City illa með granna sína í Man. United.

Leikið er bæði heima og heiman en fyrri leikur Leicester og Villa fer fram á King Power leikvanginum í kvöld.







Í Dominos-deild kvenna er svo stórleikur þar sem KR og Keflavík mætast. Liðin eru jöfn í 2. og 3. sætinu með 20 stig en KR hefur leikið einum leik meira.

Allar beinu útsendingar næstu daga má sjá hér.

Beinar útsendingar kvöldsins:

19.05 KR - Keflavík (Stöð 2 Sport 2)

19.55 Leicester - Aston Villa (Stöð 2 Sport)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×