Íslenski boltinn

Jóhannes Karl: Oft á tíðum fannst mér vera einbeittur vilji að dæma KR í hag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhannes Karl var langt frá því að vera sáttur með frammistöðu dómaratríósins í leiknum gegn KR.
Jóhannes Karl var langt frá því að vera sáttur með frammistöðu dómaratríósins í leiknum gegn KR. vísir/bára

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var svekktur eftir tap sinna manna fyrir KR, 1-2, í kvöld. Hann hafði eitt og annað við dómgæsluna í leiknum að athuga og skaut á leikstíl KR-inga.

„Þetta er svekkjandi. Mér fannst við eiga að fá meira út úr leiknum, sérstaklega eftir fyrri hálfleikinn þar sem við sköpuðum okkur mjög góð færi til að skora. Beitir [Ólafsson] varði tvisvar vel og Stefán Teitur [Þórðarson] skaut yfir úr dauðafæri. Því miður datt þetta ekki með okkur í fyrri hálfleik,“ sagði Jóhannes Karl við Vísi eftir leik.

ÍA komst yfir í upphafi seinni hálfleiks með marki Steinars Þorsteinssonar. Það kveikti hins vegar í KR sem svaraði með tveimur mörkum.

„Þeir héldu sama leikplani allan leikinn og dældu boltanum hátt og langt á bakverðina hjá okkur. Við leystum það að stóru leyti. Þeir ýttu Pálma [Rafni Pálmasyni] mjög framarlega og vilja bara vera í svoleiðis fótbolta; að vinna seinni boltann og fá horn- og aukaspyrnur. Þeir gerðu það virkilega vel en mér fannst við spila miklu betri fótbolta,“ sagði Jóhannes Karl.

„Ég er að stóru leyti sáttur við sóknar- og varnarleikinn okkar en því miður eru KR-ingar líka með góða einstaklinga.“

Einar Ingi Jóhannsson dæmdi afar ódýra vítaspyrnu á ÍA undir lok leiks en hún fór í súginn. Í uppbótartíma vildu Skagamenn svo fá vítaspyrnu en þess í stað var dæmd rangstaða á leikmann liðsins.

„Það var bara enn eitt vafaatriðið þar sem mér fannst dómaratríóið vera rosalega sátt með að dæma í hag KR. Oft á tíðum fannst mér vera einbeittur vilji að dæma KR í hag,“ sagði Jóhannes Karl.

„Það voru fullt af vafaatriðum. Bjarki Steinn [Bjarkason] var negldur niður fyrir framan vítateig KR. Boltinn fór inn á miðjuna þar sem Sindri [Snær Magnússon] fór í tæklingu og fékk dæmt á sig brot og gult spjald. Öll vafaatriði duttu með KR.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×