Innlent

Barnaníðingar nýttu sér faraldurinn

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar

Gríðarleg aukning varð í dreifingu stafræns kynferðisofbeldis gegn börnum á meðan kórónuveirufaraldurinn stóð sem hæst í Evrópu. Vísbendingar eru um að sama þróun hafi átt sér stað hér á landi.

Europol eða Evrópulögreglan hefur sent frá sér skýrslu um niðurstöður rannsóknar sinnar á stafrænu kynferðisofbeldi gegn börnum í Evrópu þegar kórónufaraldurinn stóð sem hæst og víða gilti útgöngu- eða samkomubann.

Niðurstöður skýrslunnar eru sláandi, en Catherine De Bolle forstjóri stofnunarinnar segir í upphafi skýrslunnar að stafrænt kynferðislegt ofbeldi gegn börnum hafi flætt um netið á tímabilinu mars til maíog hafi þó verið mikið fyrir faraldurinn. Þá kallar hún eftir samfélagslegu átaki gegn kynferðislegri misnotkun barna.

Fram kemur að mikil aukning varð á ofbeldinu bæði á netinu og huldunetinu á tímabilinu mars til maí á þessu ári eða þegar útgöngu-eða samkomubann gilti í mörgum löndum Evrópu.

Ferðatakmarkanir hafi gert það að verkum að barnaníðingar hafi í meira mæli en áður skipst á efni á netinu sem inniheldur kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

Þá sýni mikil umferð barnaníðinga á huldunetinu meðan faraldurinn stóð sem hæst að um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða sem börnum stafi mikil ógn af.

Varað er við að þessi aukning geti haft þau áhrif að eftirspurn eftir stafrænu kynferðislegu ofbeldi gegn börnum aukist eftir að útgöngu-eða samkomubanni lýkur.

Samfélög og löggæslan hvött til að einbeita sér að því að koma í veg fyrir framleiðslu á slíku efni. Þá þurfi að finna út hver fórnarlömb glæpamannanna eru.

Fram kemur að gríðarleg aukning varð orðið á tilkynningum um týnd börn eða misnotuð í Evrópu á tímabilinu.

Tölur frá 23 Evrópulöndum sýna að næstum allstaðar varð orðið mikil aukning á málum sem þessum

Í skýrslunni er einnig vitnað í athugasemdir barnaníðina á huldunetinu þar sem þeir þakka kórónuveirufaldrinum fyrir hversu auðvelt það sé að nálgast börn sem séu einangruð heima hjá sér.

Hér á landi virðist svipuð þróun hafa verið í gangi en samkvæmt tölum frá Barnahúsi var allt árið 2019 tilkynnt um 20 tilfelli þar sem stafrænt kynferðislegt ofbeldi gegn börnum hafði átt sér stað en tilfellin eru nú þegar orðin 19 á þessu ári.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×