Handbolti

Þórir vill innflytjendur í landsliðið

Sindri Sverrisson skrifar
Þórir Hergeirsson hefur verið þjálfari eða aðstoðarþjálfari norska landsliðsins í tvo áratugi.
Þórir Hergeirsson hefur verið þjálfari eða aðstoðarþjálfari norska landsliðsins í tvo áratugi. VÍSIR/GETTY

Landsliðsþjálfarinn Þórir Hergeirsson segir liðsskipan norska kvennalandsliðsins í handbolta ekki gefa rétta mynd af þjóðinni sem liðið tilheyri. Hann vill fleiri handboltakonur úr fjölskyldum innflytjenda í sitt sigursæla lið.

Þórir skrifaði í síðustu viku undir nýjan samning við norska handknattleikssambandið um að stýra kvennalandsliðinu fram yfir Ólympíuleikana í París 2024. Hann hefur verið aðalþjálfari liðsins frá árinu 2009 og aðstoðarþjálfari þar áður í átta ár. Undir stjórn Þóris hefur Noregur tvisvar orðið heimsmeistari, þrisvar Evrópumeistari og einu sinni Ólympíumeistari, auk þess að vinna fleiri verðlaun.

Eftir að hafa unnið með landsliðið í tuttugu ár vill Þórir, sem vissulega er sjálfur innflytjandi, eins og fyrr segir fjölga landsliðskonum af erlendum uppruna.

„Ég er stoltur af liðinu en ég sé að við endurspeglum ekki þjóðina. Okkur vantar stelpur úr innflytjendafjölskyldum á meistaraflokksstigi. Við erum með nokkra fulltrúa í yngri landsliðunum og vonum að einhverjar þeirra geti tekið skrefið. Það er mikilvægt að einhver sé fyrst og verði öðrum fyrirmynd,“ sagði Þórir við TV2.

Að sögn Þóris er mikill fjöldi barna og ungmenna úr innflytjendafjölskyldum í handbolta í Noregi.

„Það myndi ekkert gleðja mig meira en að við hefðum haft úr nokkrum þeirra að velja í A-landsliðið en svo hefur ekki verið. Við erum með margar í barnahandboltanum og snemma á unglingsaldri en svo detta þær út,“ sagði Þórir.

Verðum að spyrja stelpurnar sjálfar

Kåre Geir Lio hjá norska handknattleikssambandinu segir að sambandið sé með skýrar áætlanir um að fá fleiri iðkendur úr innflytjendafjölskyldum í handboltann og alla leið upp í A-landsliðið.

„Við vinnum að því ötullega að sjá til þess að handbolti sé fyrir alla. Það er spennandi verkefni að fá nýja landsmenn. Við höfum tekið frá sex milljónir [um 84 milljónir íslenskra króna] til að nota yfir þrjú ár og sett starfsfólk í þetta verkefni. Við verðum að átta okkur á að handbolti er ekki svo stór í mörgum af þeim löndum sem fólk kemur frá. Það getur haft sitt að segja. Við reynum að ryðja úr vegi öllum hindrunum,“ sagði Lio.

Þórir segir að mikilvægt sé að handboltayfirvöld séu tilbúin að hlusta:

„Við verðum að spyrja þau hvernig fólk upplifi handboltann. Það væru mistök að spyrja 56 ára gamlan mann. Við verðum að spyrja stelpurnar, fjölskyldurnar þeirra og samfélagið. Hvað þarf til að þær séu í handbolta eða íþróttum á hæsta stigi?“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×