Íslenski boltinn

Brynjólfur um nafnabreytinguna: „Aldrei notað eða verið kallaður Darri“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Brynjólfur Andersen fagnar öðru marka sinna í 3-3 jafntefli gegn Val síðasta sumar.
Brynjólfur Andersen fagnar öðru marka sinna í 3-3 jafntefli gegn Val síðasta sumar. Vísir/Bára Dröfn Kristinsdóttir

Það styttist í Pepsi Max deild karla í fótbolta og eftirvæntingin er mikil. Mikil spenna ríkir fyrir liði Breiðabliks en Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason eru teknir við liðinu eftir frábæran árangur með Gróttu en Seltirningar leika í fyrsta sinn í efstu deild í sumar.

Leikstíll Gróttu undanfarin tvö ár hefur vakið mikla athygli og verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig þeim Óskari Hrafni og Halldóri mun ganga að fá Breiðablik til að spila eins í efstu deild. Það er þó ekki það eina sem breytist í liði Breiðabliks en einn leikmaður liðsins breytti nýverið nafni sínu.

Hinn tvítugi Brynjólfur Andersen Willumsson lék 17 deildarleiki í liði Blika á síðustu leiktíð og skoraði þrjú mörk. Þá var hann hins vegar titlaður Brynjólfur Darri Willumsson á leikskýrslu.

„Þetta er ættarnafnið okkar, tvö yngri systkini mín heita þetta og ég ákvað loks að láta breyta þessu,“ sagði Brynjólfur Andersen í viðtali við Vísi en upphaflega hafði hann ætlað að breyta nafni sínu þegar hann fermdist.

„Ég hef aldrei verið kallaður Darri af neinum, ekki einu sinni mömmu og pabba. Hef heldur aldrei notað það sjálfur og það er ekki tengt neinu sérstöku svo ég ákvað að breyta því,“ sagði Brynjólfur.  Faðir hans, Willum Þór Þórsson, er fyrrum þjálfari KR og núverandi þingmaður Framsóknarflokksins.

Brynjólfur sagði jafnframt að hann hefði rætt þetta við foreldra sína og að þau hefðu verið sammála um að breyta því fyrst það væri það sem hann vildi. Willum Þór Willumsson, eldri bróðir Brynjólfs, leikmaður BATE Borisov í Hvíta-Rússlandi hefur þó ekki tekið upp ættarnafnið eins og systkini sín. Það er einföld skýring á því.

„Millinafnið hans er náttúrulega nafnið hans afa svo við viljum ekki breyta því og það er eiginlega alltof mikið að vera með fjögur nöfn.“

Að lokum var Brynjólfur spurður út í komandi tímabil undir stjórn Óskars og Halldórs.

„Menn eru orðnir vel spenntir fyrir því að byrja þetta mót,“ en sökum kórónufaraldursins hefur íslenska undirbúningstímabilið lengst enn frekar. Var það nógu langt fyrir.

„Þetta er bara fótbolti eftir allt saman, það er ekki mikið sem breytist. Aðallega það að við spilum enn meira út frá marki en við höfum gert vanalega. Breiðablik hefur samt alltaf unnið með að spila boltanum en það eru kannski aðeins öðruvísi útfærslur en áður,“ sagði Brynjólfur að lokum.

Brynjólfur hefur alls leikið 31 leik fyrir meistaraflokk Breiðabliks og spá því margir að hann muni springa út í sumar. Þá hefur hann leikið fyrir alls 19 leiki fyrir öll yngri landslið Íslands.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings í Pepsi Max deildinni, sagði nýverið að ef hann mætti velja tvo leikmenn úr Pepsi Max deildinni í sitt lið þá væri Brynjólfur annar þeirra.

„Ég myndi þá taka Brynjólf Darra líka. Ég þekki pabba hans ágætlega og það er „nasty“ í honum, á jákvæðan hátt. Hann er góður leikmaður og efnilegur. Hann getur náð mjög langt ef hausinn á honum helst í lagi og ef hann helst heill, sem ég held að hann verði. Ég sé hann oft í Fífunni vera æfa einn. Ég bíð spenntur eftir því að sjá hann í sumar.“

Breiðablik mætir Gróttu á Kópavogsvelli sunnudaginn 14. júní í fyrstu umferð Pepsi Max deildarinnar. Að sjálfsögðu í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Fyrsti leikur deildarinnar er á laugardeginum þegar Valur fá erkifjendurna KR í heimsókn á Hlíðarenda.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×