Innlent

Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald eftir að hafa ráðist inn með öxi

Eiður Þór Árnason skrifar
Eðlilega var versluninni lokað eftir ránstilraunina. Miklar skemmdir voru unnar á innanstokksmunum.
Eðlilega var versluninni lokað eftir ránstilraunina. Miklar skemmdir voru unnar á innanstokksmunum. Vísir/Egill

Karlmaður sem grunaður er um tilraun til vopnaðs ráns í skartgripaverslun í Reykjanesbæ í vikunni hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald að beiðni lögreglunnar á Suðurnesjum.

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri í Reykjanesbæ, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Maðurinn réðist vopnaður öxi inn í úrabúðina Georg V Hannah á fimmtudag, ógnaði starfsfólki og braut innanstokksmuni.

„Sem betur fer þá meiddist enginn og maðurinn náðist fljótlega eftir að þetta gerðist en það urðu talsvert miklar skemmdir í versluninni,“ sagði Ólafur við fréttastofu á fimmtudag.

Sjá einnig: Vörðust vopnaða manninum með ryksuguröri

Georg Viðar Hannah, úrsmíðameistari, greip til ryksugurörs þegar karlmaðurinn sem var í annarlegu ástandi réðst inn með látum í verslunina vopnaður öxi.

Georg Viðar, sem rekur úrabúðina ásamt syni sínum, var á staðnum ásamt tveimur til viðbótar þegar atvikið átti sér stað.

Ræninginn braut allt og bramlaði í versluninni og eru glerborð mölbrotin sem hafa úr og annan dýran búnað til sýnis. Hann mun vera ungur karlmaður, líklega á þrítugsaldri.

„Hann lamdi bara endalaust með öxinni í allt. Þetta var rosalegt. Við gátum ekkert farið nær honum því hann hélt þá exinni í áttina að okkur,“ sagði Georg Viðar í samtali við Vísi í gær.


Tengdar fréttir

Hin meinta haglabyssa var í raun ryksugurör

Georg Viðar Hannah, úrsmíðameistari við Hafnargötu í Reykjanesbæ, greip til ryksugurörs þegar karlmaður í annarlegu ástandi réðst inn í verslun sem þeir feðgar reka í bænum.

Mikið tjón á innanstokksmunum eftir vopnað rán

Mikið tjón varð á innanstokksmunum eftir tilraun til vopnaðs ráns hjá úrsmið í Keflavík í dag. Glerborð sem hafa skartgripi til sýnis eru mölbrotin eftir að ungur karlmaður hjó í þau með öxi. Engan sakaði en starfsfólk kom sér strax í skjól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×