Enski boltinn

Anelka, Torres, Lukaku og Eto'o allir á eftir Eiði Smára

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar einu af 55 mörkum sínum fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en þetta mark kom á móti hans gamla liði Bolton Wanderers.
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar einu af 55 mörkum sínum fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en þetta mark kom á móti hans gamla liði Bolton Wanderers. Getty/Clive Rose

Hver er besti framherji Chelsea frá árinu 2000? Þeirri spurningu svaraði fólkið á Give Me Sport og Ísland á fulltrúa mjög ofarlega á listanum.

Það þarf ekki að koma mörgum á óvart að Didier Drogba var valinn besti framherji Chelsea til þessa á 21. öldinni enda sigursæll leikmaður sem skoraði jafnan mörg mörk í stóru leikjunum.

Það var heldur ekki hægt að búast við því að Eiður Smári Guðjohnsen væri ofar en menn eins og Diego Costa og Jimmy Floyd Hasselbaink. En hafa einhverjir aðrir staðið sig betur en Eiður í framlínu Chelsea frá árinu 2000.

Svo var ekki að mati þeirra á Give Me Sport. Þau mátu sem svo að það hafi aðeins verið þrír framherjar Chelsea sem teljast hafa staðið sig betur en Eiður Smári Guðjohnsen í Chelsea búningnum.

Chelsea eyddi miklum peningi í menn eins og Hernan Crespo, Adrian Mutu, Andriy Shevchenko, Fernando Torres og Alvaro Morata en enginn þeirra náði að komast upp fyrir Eið Smára á þessum lista.

Radamel Falcao, Gonzalo Higuain og Romelu Lukaku eru líka allir langt á eftir okkar manni.

„Stórkostlegur leikmaður. Kostaði félagið aðeins 4,5 milljónir punda. Guðjohnsen skoraði 75 mörk á sex tímabilum sínum með Chelsea,“ segir í rökstuðningi Give Me Sport um valið á Eiði Smára í fjórða sætið.

Eiður Smári á líka sinn þátt í því að Hollendingurinn Jimmy Floyd Hasselbaink skipar þriðja sætið. Eiður Smári og Hasselbaink náðu frábærlega saman og Eiður lagði upp mörk fyrir Jimmy Floyd.

Eiður Smári steig sín fyrstu skref í atvinnumennsku í Hollandi og kunni því hollensku sem hjálpaði þeim örugglega. Chelsea keypti Jimmy Floyd Hasselbaink frá Atlético Madrid í lok maí og Eiður Snári var keyptur frá Bolton Wanderers nítján dögum síðar.

Eiður Smári er næstur á undan Nicolas Anelka sem skoraði þó 59 mörk fyrir félagið og varð markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2008-09.

Jimmy Floyd Hasselbaink kostaði ellefu milljónum pundum meira en Eiður Smári. Hasselbaink skoraði 87 mörk í 177 leikjum fyrir Chelsea en hann yfirgaf félagið þegar Jose Mourinho tók við.

Eiður Smári spilaði hins vegar fyrstu tvö tímabilin undir stjórn Jose Mourinho og varð þá tvisvar enskur meistari með félaginu.

Bestu framherjar Chelsea frá árinu 2000:

  • 25. Franco Di Santo
  • 24. Radamel Falcao
  • 23. Claudio Pizarro
  • 22. Mikael Forssell
  •  21. Carlton Cole
  • 20. Adrian Mutu
  • 19. Mateja Kežman
  • 18. Gonzalo Higuain
  • 17. Romelu Lukaku
  • 16. Loïc Rémy
  • 15. Demba Ba
  • 14. Andriy Shevchenko
  • 13. Michy Batshuayi
  • 12. Daniel Sturridge
  • 11. Alvaro Morata
  • 10. Samuel Eto'o
  • 9. Olivier Giroud
  • 8. Hernán Crespo
  • 7. Fernando Torres
  • 6. Tammy Abraham
  • 5. Nicolas Anelka
  • 4. Eiður Smári Guðjohnsen
  • 3. Jimmy Floyd Hasselbaink
  • 2. Diego Costa
  • 1. Didier Drogba



Fleiri fréttir

Sjá meira


×