Erlent

Thunberg ætlar að sigla vestur um haf á loftslagsráðstefnu

Kjartan Kjartansson skrifar
Greta Thunberg segir að sjóferðin á skútunni yfir Atlantshafið verið lengi í minnum höfð.
Greta Thunberg segir að sjóferðin á skútunni yfir Atlantshafið verið lengi í minnum höfð. AP/David Keyton
Sænski aðgerðasinninn Greta Thunberg ætlar að verða viðstödd loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York og Síle í haust og vetur. Þar sem hún flýgur ekki til að draga úr kolefnisfótspori sínu ætlar Thunberg sjóleiðina yfir Atlantshafið.

Thunberg, sem er sextán ára gömul, hefur vakið heimsathygli fyrir skólaverkfall sitt fyrir loftslagsaðgerðum sem hefur breiðst út til fjölda landa. Henni er boðið á loftslagsþingið í New York í september og í Santiago í Síle í desember.

Þar vandast málin því Thunberg flýgur ekki vegna mikillar losunar flugvéla á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum. Farþegaskip koma heldur ekki til greina þar sem þau eru einnig stórir losendur.

Í viðtali við AP-fréttastofuna segir Thunberg, sem ætlar að taka sér ársfrí frá skóla til að berjast fyrir loftslagsaðgerðum, að hún hafi varið mörgum mánuðum í að finna leið til að ferðast til Bandaríkjanna án þess að þurfa að fljúga.

Lausnina fann hún í keppnisskútu sem leggur upp frá Bretlandi í næsta mánuði. Skútan er búin sólarrafhlöðum og neðanborðstúrbínu sem framleiða vistvænt rafmagn um borð.

Segir tilgangslaust að tala Trump til

Þetta verður fyrsta heimsókn Thunberg með boðskap sinn til Bandaríkjanna þar sem minni þekking er á orsökum og afleiðingum loftslagsbreytinga en í Evrópu og hatrammari andstaða hagsmunaaðila við aðgerðir.

„Ég reyni bara að halda áfram eins og ég hef hert. Vísa bara alltaf til vísindanna og við sjáum hvað setur,“ segir Thunberg um hvernig móttöku hún væntir vestanhafs.

Útilokar hún ekki að funda með Donald Trump Bandaríkjaforseta en efast um að af því verði þar sem slíkur fundur gæti reynst tímasóun.

„Eins og útlitið er núna held ég ekki vegna þess að ég hef ekkert við hann að segja. Hann hlustar augljóslega ekki á vísindin og vísindamennina. Hvers vegna ætti ég, barn við enga almennilega menntun, að geta sannfært hann?“ spyr Thunberg.

Trump ætlar að draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu á næsta ári. Ríkisstjórn hans ætlar einnig að afnema eða útvatna verulega loftslagsaðgerðir sem fyrri ríkisstjórn hafði undirbúið.


Tengdar fréttir

Fer frá eftir Downs-ummæli um Gretu Thunberg

Á Facebook-síðu sænsk forstjóra stóð um Thunberg að hún væri eins nálægt því að vera með Downs-heilkennið og hægt væri að komast. Forstjórinn hefur nú látið af störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×