Innlent

Helga Vala segir lögregluna fjársvelta

Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Fréttablaðið/Eyþór
Þingmaður Samfylkingarinnar bendir á að þyrlukaup Landhelgisgæslunnar séu inni í því fjármagni sem sett er í löggæslu hér á landi. Auka þurfi fjármagn til Lögreglunnar sjálfrar til að mæta auknum umsvifum skipulagðrar glæpastarfsemi. Lögreglan sé of fáliðuð, það vanti mannskap í rannsóknir og fé til að þjálfa starfsfólk embættisins. Einn milljarð vanti hið minnsta.

Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra dró upp dökka mynd af glæpastarfsemi hér á landi. Þar er greint frá að umsvif erlendra glæpahópa hafi farið vaxandi, þar á meðal á sviði fíkniefnaviðskipta.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðustu viku benti aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti Ríkislögreglustjóra á að ef ekkert verði gert muni starfsemin aukast enn frekar.

Lögreglan á Íslandi sé veik og hafi ekki getu til að sinna frumkvæðisvinnu. Dómsmálaráðherra segir augljóst að frekara fjármagn þurfi til löggæslu.

Í þættinum Bítinu sagði Helga Vala Helgadóttir skýrsluna gefa til kynna að lögreglan hafi verið fjársvelt:  „Það eru færri lögreglumenn að störfum núna en voru fyrir hrun við erum samt með umtalsvert fleiri ferðamenn og fleiri íbúa og miklu erfiðari verkefni í rauninni.“

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tókst á við Helgu Völu um málið og benti á að fjármagn hafi verið aukið til lögreglunnar síðustu ár.

„Hins vegar er það það, að lögreglan stjórnar því hvert peningarnir fara. Hvort að við þurfum meiri mannafla eða ekki. Þeir stjórna því. Ég er bara að segja að við höfum talsvert aukið fjármagn í löggæslumál á undanförnum árum og misserum.“

Helga Vala var honum ekki sammála og benti á að þyrla Landhelgisgæslunnar væri reiknuð inn í þá tölu: „Nú skulum við segja satt og ekki satt, þegar Brynjar og hans flokksfélagar tala um aukið fjármagn til löggæslu þá eru þeir með þyrlu til Landhelgisgæslunnar inni í þeirri tölu. Það er bara þannig.“

„Það er þannig, því að þetta er inni í sama menginu í fjárlögum og fjármálaáætlun, þar eru þyrlukaup Landhelgisgæslunnar inni í. Gæslan og lögreglan saman, í sama málaflokki. Ef við horfum á tölurnar þá hefur löggæslumönnum fækkað mjög mikið, um 300 lögreglumenn. Það þarf einn milljarð í innspýtingu til að ná lögreglumönnum upp í þann fjölda sem er ásættanlegur. Það er staðreynd sem ekki er hægt að neita,“ bætti Helga Vala við.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×