Golf

Sjáðu gæsahúðarmyndband Nike eftir sigur Tiger

Anton Ingi Leifsson skrifar
Skemmtileg syrpa af fögnuði Tiger.
Skemmtileg syrpa af fögnuði Tiger. vísir/getty
Nike hefur verið einn aðalstyrktaraðilli Tiger Woods í gegnum tíðina og hefur Tiger verið eitt helsta vörumerki íþróttaframleiðandans.

Framleiðandinn hætti aldrei að styðja við bakið á Bandaríkjamanninum þrátt fyrir hæðir og lægðir og þeir uppskáru heldur betur í dag er Tiger vann sitt fyrsta risamót í langan tíma.







Af því tilefni ákváðu þeir að búa til ansi hjartnæmt myndband sem þeir sendu út á samfélagsmiðla í kvöld þar sem er fjallað um framgöngu Tiger undanfarin ár.

Sjón er sögur ríkari en myndbandið er hér að ofan sem endar á einkennisorðum Nike: Just do it.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×