Innlent

Al­elda snjó­ruðnings­tæki á Vestur­lands­vegi

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Eins og sjá má á þessari mynd af vettvangi var töluverður eldur í bílnum.
Eins og sjá má á þessari mynd af vettvangi var töluverður eldur í bílnum.

Eldur kom upp í snjóruðningstæki á Vesturlandsvegi við Grafarholt rétt eftir klukkan sjö í morgun.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var bíllinn orðinn alelda þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang en nú er verið að ganga frá á vettvangi.

Bíllinn, sem er stór pallbíll með hefiltönn að framan, er gjörónýtur. Ökumanni varð ekki meint af að sögn varðstjóra en upptök eldsins eru ókunn á þessari stundu.

Klippa: Eldur kom upp í bíl á Vesturlandsvegi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×