Innlent

Svanhildur Hólm sækir um útvarpsstjórann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Svanhildur Hólm mundar símann á Degi íslenskrar tónlistar í síðustu viku.
Svanhildur Hólm mundar símann á Degi íslenskrar tónlistar í síðustu viku. SAMTÓNN/Ásta Kristjánsdóttir

Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og fjölmiðlakona, er á meðal þeirra 41 sem sótti um starf útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins. Þetta staðfestir hún við Vísi. Umsóknarfrestur rann út á miðnætti í gær.

Svanhildur hefur verið aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra frá árinu 2012. Frá 2009-2012 var hún framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Svanhildur er lögfræðingur að mennt og starfaði um langt árabil við fjölmiðla. Svanhildur var bæði þáttastjórnandi í Kastljósi hjá Ríkisútvarpinu og Íslandi í dag á Stöð 2.

Meðal annarra umsækjenda um starfið eru Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Elín Hirst, Baldvin Þór Bergsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Kristín Þorsteinsdóttir.

Stjórn Ríkisútvarpsins hefur neitað að birta lista umsækjenda um starfið.


Tengdar fréttir

Svanhildur sækir ekki um stöðu útvarpsstjóra

Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, ætlar ekki að sækja um starf útvarpsstjóra þrátt fyrir mikla hvatningu. Umsóknarfresturinn rennur út á miðnætti en hann var lengdur um viku af stjórn Ríkisútvarpsins án skýringa í síðustu viku.

41 vill verða útvarpsstjóri

Alls barst 41 umsókn um starf útvarpsstjóra en umsóknarfrestur rann út á miðnætti í gær. Svo segir í tilkynningu frá stjórn Ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×