Sport

Martraðarbyrjun hjá Katrínu Tönju í fyrstu grein í Dúbaí

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir.
Katrín Tanja Davíðsdóttir. Mynd/Youtube/ Dubai CrossFit Championship

Katrín Tanja Davíðsdóttir hafði beðið lengi eftir að keppa á CrossFit mótinu í Dúbaí og var með í ár en mótið hófst í morgun. Byrjunin hjá þessum tvöfalda heimsmeistara gat hins vegar ekki verið verri.

Katrín Tanja er í raun úr leik á mótinu eftir fyrstu grein því hún náði ekki að klára hana og situr eftir stigalaus á botninum.

Katrín Tanja hefur talað um það að hún hafi áður verið hrædd við að synda í opnum sjó og það var nóg af slíku í þessari fyrstu skrein á mótinu.

Íslensku keppendurnir á DubaiCrossFitChampionship í ár eru Björgvin Karl Guðmundsson, Sara Sigmundsdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Oddrún Eik Gylfadóttir.

Mótið stendur yfir frá 11. til 14. desember og lýkur því á laugardaginn. Keppni tafðist aðeins í morgun vegna slæms veðurs en mikil rigningarskúr gekk þá yfir Dúbaí.

Æfingin snerist um að lyfta þungum sandpokum og synda síðan 150 metra sjósund á eftir. Hver íþróttamaður þurfti að fara í gegnum þrjár umferðir. Fyrst að lyfta tuttugu sandpokum, þá tíu sandpokum og loks fimm sandpokum. Eftir hverja sandpokatörn beið síðan 150 metra sjósund og því þurfti að synda alls 450 metra í sjónum.

Sara Sigmundsdóttir endaði í 3. til 7. sæti og fékk því 90 stig fyrir þessa fyrstu grein. Svíinn Emma Tall vann hana og Daninn JulieHougard varð önnur. Oddrún Eik Gylfadóttir varð áttunda í þessari fyrstu grein á mótinu. Aðeins Emma og Julie náðu að klára þessar þrjár umferðir.

Björgvin Karl Guðmundsson kom þriðji í mark hjá körlunum en efstu tveir menn voru Finninn JonneKoski og Kanadamaðurinn öflugi BrentFikowski. Björgvin Karl fékk því 90 stig. Aðeins Koski og Fikowski náðu að klára allar þrjá umferðirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×