Innlent

Ellefta árið í röð sem jafn­rétti kynjanna mælist mest á Ís­landi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Er þetta ellefta árið í röð sem Ísland er efst á listanum.
Er þetta ellefta árið í röð sem Ísland er efst á listanum. vísir/vilhelm

Ísland er efst á nýjum lista Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) yfir ríki þar sem kynjajafnrétti mælist mest í heiminum. Er þetta ellefta árið í röð sem Ísland er efst á listanum en hann var gefinn út í morgun ásamt skýrslu um stöðu kynjajafnréttis á heimsvísu.  

Næst á eftir Íslandi koma Norðurlöndin Noregur, Finnland og Svíþjóð en í fimmta sæti er Níkaragva og Nýja-Sjáland er í því sjötta. Írland er í sjöunda sæti, Spánn í því áttunda, Rúanda í níunda sæti og Þýskaland situr í því tíunda.

Í tilkynningu á vef Alþjóðaefnahagsráðsins segir að ekkert okkar muni upplifa að sjá jafnrétti kynjanna náð og líklega munu mörg barna okkar heldur ekki ná því.

Það er meginniðurstaða skýrslunnar sem leiðir í ljós að fullu jafnrétti kynjanna verði ekki náð í heiminum fyrr en eftir 99,5 ár. Í fyrra var árafjöldinn 108 ár.

Þetta er 14. árið í röð sem Alþjóðaefnahagsráðið gefur út skýrslu sína um jafnrétti kynjanna í heiminum. Úttektin nær til alls 153 landa en lagt er mat á jafnrétti kynjanna í stjórnmálum, menntun atvinnu og heilbrigði.

Í ár eru störf framtíðarinnar einnig sérstaklega skoðuð með tilliti til jafnréttis kynjanna. Þannig sýnir skýrslan að konur eru aðeins tólf prósent þeirra sem starfa við skýjavinnslu (e. cloud computing). Í verkfræði eru konur fimmtán prósent og svo 26 prósent sem starfa við gagnavinnslu og gervigreind.

Nánar má lesa um skýrsluna á vef Alþjóðaefnahagsráðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×