Matur

Jólaísinn hennar Evu Laufeyjar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Mynd/evalaufeykjaran.is

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir er einstaklega fær í eldhúsinu og í kringum jólin töfrar hún fram dásamlegar uppskriftir af eftirréttum. Hér deilir hún með lesendum Vísis uppskrift af sínum uppáhalds jólaís. Þessi eftirréttur hentar einstaklega vel núna um hátíðarnar. Við gefum Evu Laufey orðið. 

Jólaísinn er alltaf sérstaklega góður og fyrsti skammturinn rann ljúflega niður í matargesti kvöldsins sem voru sammála um að þetta væri besti ís sem þau höfðu smakkað og ekki fer fjölskyldan mín að plata  Ég þori að veðja að þið eigið eftir að verða jafn hrifin og ég skora á ykkur að prófa þessa uppskrift sem allra fyrst.

Lindor súkkulaðiísinn

Fyrir 6 – 8

·         20  Lindor súkkulaðikúlur (ég notaði rauðu kúlurnar)

·         1 msk rjómi

·         10 eggjarauður

·         10 msk sykur

·         500 ml rjómi

·         2 tsk vanilludropar

 

Aðferð:

  1. Bræðið 10 súkkulaðikúlur yfir vatnsbaði.
  2. Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós.
  3. Saxið niður 10 súkkulaðikúlur mjög smátt.
  4. Þeytið rjóma og blandið honum saman við eggja-og sykurblönduna með sleikju. Því næst fer súkkulaðið saman við og hrærið öllu varlega saman og hellið ísnum í form.
  5. Frystið þar til ísinn er frosinn í gegn.

Berið ísinn gjarnan fram með heitri súkkulaðisósu og ferskum berjum.

Lindor súkkulaðisósa

·         150 g Lindor kúlur (rauðu kúlurnar)

·         2 dl rjómi

Aðferð:

  1. Setjið hráefnin saman í pott og leyfið kúlunum að bráðna í rjómanum við vægan hita.
  2. Hrærið í á meðan og berið sósuna strax fram ísnum. 

Tengdar fréttir

Uppskrift: Beef Wellington

Jólamaturinn minn í öllu sinni veldi. Dúnmjúk og safarík nautalund með sveppafyllingu, vafin í hráskinku og pökkuð inn í gómsætt smjördeig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×