Erlent

Telja ekki að um hryðju­verk hafi verið að ræða

Eiður Þór Árnason skrifar
Mikil mannmergð var í miðborg Haag þegar árásin átti sér stað.
Mikil mannmergð var í miðborg Haag þegar árásin átti sér stað. Vísir/AP
Hollenska lögreglan segist ekki hafa fundið neitt sem bendi til þess að stunguárásin í Haag á föstudag hafi verið hryðjuverk.

Þrjú fórnarlömb árásarinnar voru öll á táningsaldri og hafa þau verið útskrifuð af spítala. Einn hefur verið handtekinn vegna árásarinnar.

Lögreglan greindi frá því í dag að ekkert hafi komið í ljós við yfirheyrslur á hinum grunaða sem bendi til þess að hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk. Hann er sagður vera 35 ára gamall heimilislaus karlmaður.

Rannsókn á málinu er enn ólokið. Árásin í Hollandi kom einungis nokkrum klukkutímum eftir að dæmdur hryðjuverkamaður framdi ódæði á Lundúnarbrú í Bretlandi og stakk þar tvo til bana.

Atvikið í Haag átti sér stað í verslun við götuna Grote Marktstraat en margmenni var þá í miðbæ borgarinnar vegna svarts föstudags. Fórnarlömb árásarinnar voru tvær stelpur fimmtán ára að aldri og einn þrettán ára drengur.


Tengdar fréttir

Leita enn árásarmannsins í Hollandi

Leit hollensku lögreglunnar að árásarmanninum sem stakk þrjú ungmenni með hníf í gær stendur enn yfir. Ekki er enn vitað hvað lá að baki árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×