Viðskipti innlent

Dreifi­veitum skylt að bjóða út raf­orku­kaup vegna orku­taps

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Íslensk orkumiðlun höfðaði mál gegn RARIK vegna kaupanna.
Íslensk orkumiðlun höfðaði mál gegn RARIK vegna kaupanna. vísir/vilhelm
Dreifiveitur mega ekki einskorða raforkukaup sín vegna orkutaps í dreifikerfi sínu við tengd félög heldur er þeim skylt að bjóða kaupin út.

Þetta er niðurstaða kærunefndar útboðsmála í máli sem Íslensk orkumiðlun höfðaði gegn RARIK og fjallað er um í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins, í dag.

Þar kemur fram að viðskipti af þessu tagi nemi hundruðum milljóna króna á ári hverju. Dreifiveitur kaupi reglulega ár hvert rafmagn á raforkumarkaði til að mæta orkutapi í dreifikerfinu.

Hefur RARIK einungis keypt rafmagn af dótturfélagi sínu Orkusölunni, sem starfar á sama markaði og Íslensk orkumiðlun.

Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu að RARIK yrði að bjóða þessi raforkukaup út.

„Það hafa miklir fjármunir verið að flæða á milli þessara tengdu fyrirtækja sem áður voru eitt og sama fyrirtækið og við höfum ekki fundið dæmi um jafn umfangsmikil og vísvitandi brot á lögum um opinber innkaup. Þarna er verið að losa um mjög umfangsmikil viðskipti sem mikil leynd hefur hvílt yfir,“ segir Magnús Júlíusson, framkvæmdastjóri Íslenskrar orkumiðlunar, í samtali við Fréttablaðið.

Hann segir úrskurðinn hafa þá þýðingu að á dreifiveitunum hvíli sú ótvíræða skylda að fara í útboð. Það hafi hins vegar alltaf verið reynt að halda viðskiptunum innandyra hjá fyrirtækjunum.

„Með því að fara ekki í útboð eru dreifiveiturnar ekki að tryggja hagkvæmustu verð á hverjum tíma en kaupa þess í stað raforku af tengdum aðilum á uppsettum verðum,“ segir Magnús.

Fram kemur í Fréttablaðinu að viðskipti RARIK og Orkusölunnar séu ekki einsdæmi. Þannig hafi allar dreifiveitur, fyrir utan Veitur, keypt rafmagn af tengdu félagi, án útboðs, til að mæta dreifitapi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×