Innlent

Stærðarinnar hval rak á land á Gálma­strönd

Eiður Þór Árnason skrifar
Talið er að það muni koma betur í ljós á morgun hver næstu skref verði.
Talið er að það muni koma betur í ljós á morgun hver næstu skref verði. Lögreglan á Vestfjörðum
Stærðarinnar hval rak á land á Gálmaströnd við Stekkjarnes og barst tilkynning þess efnis lögreglunni á Vestfjörðum í dag. Hvalurinn var á lífi þegar hann fannst en er talinn hafa drepist rétt fyrir myrkur. Um var að ræða stóran Hnúfubak.

Bjarnþóra María Pálsdóttir hjá lögreglunni á Hólmavík var send á vettvang fyrr í dag og segir málið vera komið í viðeigandi ferli. Hún segir í samtali við Vísi að fyrstu viðbrögð í svona málum séu alltaf að reyna að bjarga dýrinu en það hafi ekki verið raunhæft í þessu tilviki.

Ekki var hægt að fara í frekari aðgerðir í dag vegna myrkurs og kemur því betur í ljós á morgun hvaða skref verða tekin til að fjarlægja hræið.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum kemur fram að lögreglunni hafi verið tilkynnt um hvalrekann á fjórða tímanum í dag og var hann talinn dauður um tveimur tímum síðar. Málið er sagt vera í vinnslu og að framhald aðgerða verði skoðað á morgun. Umhverfisstofnun hafi jafnframt verið upplýst um málið.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af dýrinu sem Bjarnþóra tók í dag.

Hvalur í fjörunni

Hvalur í fjörunni

Posted by Skotveiðifélag Íslands Skotvís on Wednesday, November 27, 2019



Fleiri fréttir

Sjá meira


×