Bíó og sjónvarp

Fri­ends-leikararnir gætu sam­einast á ný í nýjum þætti hjá HBO Max

Atli Ísleifsson skrifar
Alls voru framleiddir 236 þættir af Friends á árunum 1994 til 2004.
Alls voru framleiddir 236 þættir af Friends á árunum 1994 til 2004. Getty
Allir sex aðalleikararnir og skaparar Friends-þáttanna vinsælu gætu komið saman á ný í tengslum við framleiðslu á sérstökum Friends-þætti hjá HBO Max. Öll eiga þau í viðræðum við fjölmiðlarisann en samningar eru þó ekki í höfn. Streymisveitunni HBO Max verður hleypt af stokkunum í apríl á næsta ári.

Haldið var upp á það í haust að aldarfjórðungur væri nú frá því að fyrsti Friends-þátturinn var sýndur í sjónvarpi, en alls voru framleiddar tíu þáttaraðir af þáttunum vinsælu, 236 þættir.

Viðræður standa nú yfir vegna mögulegrar endurkomu þó að eðli þáttarins liggi enn ekki fyrir. Variety segir að líklegast verði að leikararnir – þau Jennifer Aniston, Courteney Cox, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc, Matthew Perry og David Schwimmer – og skaparnir David Crane og Marta Kaufmann muni þar koma saman til að deila sögum og minningum frá framleiðsluárum þáttanna.

Myndi nást samkomulag við alla aðila er sigurinn þó ekki í höfn. Þá taki við það verkefni að reyna að finna tíma fyrir framleiðslu þáttarins þannig allir komist. Slíkt gæti reynst þrautin þyngri þar sem mörg þeirra eru þétt bókuð næstu mánuði.

„Vinna að nokkru“

Hægt er að streyma þáttunum á streymisveitunni Netflix en þeir munu svo færast yfir á veituna HBO Max. Hafa fréttir borist af því að WarnerMedia, sem kemur að HBO Max, greiði 85 milljónir Bandaríkjadala á ári í fimm ár fyrir réttinn til að sýna þættina.

Lengi hefur verið rætt um endurræsingu þáttanna en leikarnarnir hafa allir hafnað því að taka þátt í nýjum, leiknum þáttum þar sem þau færu aftur með hlutverk þeirra Rachel, Monicu, Phoebe, Ross, Joey og Chandler.

Jennifer Aniston byrjaði nýverið á Instagram þar sem fyrsta myndin var af öllum sex aðalleikurum þáttanna. Tókst henni að safna fimm milljónum fylgjenda á fyrstu tólf klukkustundunum. Síðar sagði hún í samtali við spjallþáttastjórnandann Ellen DeGeneres að sexmenningarnir væru að „vinna að nokkru“, án þess að útskýra það neitt nánar.

 
 
 
View this post on Instagram
A post shared by Jennifer Aniston (@jenniferaniston) on Oct 15, 2019 at 6:03am PDT


Tengdar fréttir

Vinirnir komu saman á Instagram

Aðdáendur þáttanna vinsælu fá eflaust hlýtt í hjartað við nýjustu færslu Jennifer Aniston á Instagram.

Jennifer Aniston og Ellen DeGeneres kysstust

Leikkonan Jennifer Aniston var gestur í spjallþætti Ellen DeGeneres í vikunni þar sem þær ræddu báðar um vináttu sína við útvarpsmanninn þekkta Howard Stern.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×