Innlent

Sótti 42 milljóna lottó­vinninginn

Atli Ísleifsson skrifar
Miðann keypti maðurinn í appi.
Miðann keypti maðurinn í appi. Vísir/Vilhelm
Miðahafinn sem vann 41,8 milljónir í lottóútdrætti helgarinnar er þriggja barna fjölskyldufaðir af höfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Þar segir að hann hafi keypt miðann í gegnum Lottó appið, tíu raða sjálfvalsmiða, og skolfið á beinunum þegar hann sá að hann hafi landað þeim stóra.

„Vinningurinn er þeim hjónum mjög kærkominn og sjá þau loksins fram á að komast af leigumarkaðnum yfir í eigið húsnæði, nokkuð sem þau höfðu látið sig dreyma um lengi,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×