Viðskipti innlent

Hið op­in­ber­a fjár­fest­i í stað nið­ur­greiðsl­u skuld­a

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
"Opinberar skuldir hafa minnkað mikið á síðustu árum,“ segir Hagfræðideild Landsbankans.
"Opinberar skuldir hafa minnkað mikið á síðustu árum,“ segir Hagfræðideild Landsbankans. Fréttablaðið/Ernir
Það er áleitin spurning hvort ekki sé skynsamlegt fyrir hið opinbera, kannski sérstaklega ríkissjóð, að slaka á markmiðum um mikla lækkun skulda í árferði eins og nú ríkir og huga frekar að því að auka fjárfestingar sem nýtast samfélaginu til framtíðar. Þetta segir Hagfræðideild Landsbankans í nýrri hagspá sinni.

„Opinberar skuldir hafa minnkað mikið á síðustu árum,“ segir Hagfræðideildin. Stefnt er að því að heildarskuldir hins opinbera verði komnar undir 30 prósent af vergri landsframleið í lok ársins.

Eignasala

„Til þess að ná þessum markmiðum hafa komið til óreglulegar tekjur, t.d. af eignasölu og óreglulegum arðgreiðslum og er gert ráð fyrir að svo verði áfram. Reiknað hefur verið með að á árunum 2019-2021 verði hægt að nýta tæplega 120 milljarða tekjur frá fyrirtækjum í ríkiseigu til að greiða niður skuldir,“ segir í hagspánni.

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2020 er lagt til að útgjöld ríkissjóðs verði aukin um rúm 10 prósent að nafnvirði frá fyrra ári sem er vel umfram verðlagsþróun og aukningu landsframleiðslu. Gert er ráð fyrir 0,4 milljarða afgangi á næsta ári, samkvæmt frumvarpinu, rifjar Hagfræðideildin upp.



Áherslur lítið breyst

„Það vekur óneitanlega athygli hversu lítið áherslur í fjármálum hins opinbera hafa breyst á síðustu árum, þrátt fyrir mikið breytta samsetningu ríkisstjórna. Það gæti bent til þess að stjórnmálamenn séu almennt sammála um stóru myndina í fjármálum ríkisins. Við það bætist að erfitt er að sveigja mikið frá fjármálaáætlun,“ segir Hagfræðideildin.

Landsbankinn gerir ráð fyrir að verulega muni hægja á hagvexti á næstu árum eftir kröftugan vöxt síðustu ár. Samkvæmt spánni mun landsframleiðsla dragast lítillega saman á þessu ári og hagvöxtur verður neikvæður um 0,4%. Á næsta ári er reiknað með tveggja prósenta hagvexti og að hann aukist lítillega árin 2021 og 2022.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×