Erlent

Sex­tán dæmd til dauða fyrir að hafa kveikt í nemanda

Atli Ísleifsson skrifar
Morðið á Nusrat vakti gríðarlega athygli í Bangladess og leiddi meðal annars til fjölmennra mótmælafunda þar sem réttlætis var krafist í nafni hinnar látnu.
Morðið á Nusrat vakti gríðarlega athygli í Bangladess og leiddi meðal annars til fjölmennra mótmælafunda þar sem réttlætis var krafist í nafni hinnar látnu. Getty
Dómstóll í Bangladess hefur dæmt sextán manns til dauða vegna morðsins á hinni nítján ára Nusrat Jahan Rafi. Þótti sannað að hinir dæmdu hefði kveikt í Nusrat eftir að hún hafði sakað kennara sinn um kynferðislega áreitni.

BBC segir frá því að Nusrat hafi látið lífið í apríl síðastliðinn í smábænum Feni, um 160 kílómetrum frá höfuðborginni Dhaka. Skólastjórinn sem Nusrat hafði sakað um áreitnina og tvær bekkjarsystur Nusrat voru í hópi þeirra sem hlutu dauðadóma.

Morðið á Nusrat vakti gríðarlega athygli í Bangladess fyrr á árinu og leiddi meðal annars til fjölmennra mótmælafunda þar sem réttlætis var krafist í nafni hinnar látnu.

Sjaldan hafa réttarhöld í máli sem þessu tekið svo skamman tíma, en nokkur ár tekur vanalega fyrir dómstóla í Bangladess að ná niðurstöðu morðmálum. Sagði saksóknarinn Hafez Ahmed að málið sýndi fram á að enginn kæmist upp með morð í Bangladess.

Einn sakborninga leiddur út úr dómsal.EPA

Kveikt í Nusrat uppi á þaki skólans

Verjendur hinna dæmdu segja að dómnum verði áfrýjað. Í hópi hinna dæmdu er einnig að hinna tvo stjórnmálamenn úr stjórnarflokknum Awami-bandalaginu og þrír úr starfsliði skólans. Greina fjölmiðlar frá því að saksóknarar sögðu skólastjórann Siraj Ud Doula hafa fyrirskipað morðið.

Þá þótti sannað að lögreglumenn á svæðinu hafi unnið með hinum dæmdu að því að dreifa fölskum upplýsingum um að Nusrat hafi fyrirfarið sér.



Lést fjórum dögum síðar

BBC segir frá því að Nusrat hafi verið göbbuð upp á þak skólans þann 6. apríl síðastliðinn, ellefu dögum eftir að hún tilkynnti skólastjórann til lögreglunnar. Fjórir eða fimm, allir íklæddur búrkum, þrýstu þá á hana að draga kvörtun sína til baka. Þegar hún sagðist neita því kveiktu þeir í henni.

Nusrat tókst hins vegar að sleppa frá fólkinu, en hlaut brunasár á 80 prósent líkamans. Bróðir hennar tók upp myndskeið þar sem hún sagði skólastjórann hafa snert sig á óviðeigandi máta og að hún muni berjast gegn því allt þar til að hún drægi sinn síðasta andardrátt.

Hún lést svo fjórum dögum síðar af áverkum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×