Skoðun

Öflugt Sam­keppnis­eftir­lit

Lárus Sigurður Lárusson skrifar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur kynnt ný frumvarpsdrög um breytingu á samkeppnislögum. Breytingarnar lúta helst að því að takmarka heimildir Samkeppniseftirlitsins og er tilgangur þeirra sagður vera að einfalda framkvæmd laganna og auka skilvirkni.

Virk samkeppni er hagsmunamál allra enda er hún neytendum og almenningi til hagsbóta og eykur samkeppnishæfni atvinnulífs. Þannig var t.d. opnun markaða og afnám samkeppnishindranna stór liður í endurreisn atvinnulífsins eftir efnahagshrunið og gengdi Samkeppniseftirlitið þar lykilhlutverki.

Með frumvarpsdrögum þessum eru mikilvægar heimildir teknar af Samkeppniseftirlitinu og staða þess veikt verulega. Sú aðgerð, að taka tækin úr höndum eftirlitsaðilans, mun ekki einfalda regluverk eða leiða til einföldunar efnisregla samkeppnisréttarins. Þær reglur eru óbreyttar, t.d. efnisreglur um hvað geti fallið undir ólögmætt samráð eða samstilltar aðgerðir, sem í gegnum tíðina hafa verið taldar flóknustu reglurnar enda háðar mati á heildaraðstæðum hverju sinni.

Víst stjórnvöldum er umhugað að einfalda regluverk og framkvæmd samkeppnislaga þá ættu þau að beita sér fyrir því að ryðja úr vegi samkeppnishömlum sem finnast á ýmsum mörkuðum. Hefur Samkeppniseftirlitið ítrekað bent á fjölda aðgerða í þessu samhengi á yfir hundrað mörkuðum hér á landi, allt frá útgáfu skýrslu Eftirlitsins nr. 2/2008 og fleiri skýrslum í kjölfar hennar.  Þetta staðfesti einnig hin svokallaða Mackinsey skýrsla og var sömu aðferðafræði beitt í fleiri ríkjum eftir hrun.

Verði frumvarpsdrögin að veruleika er alveg ljóst að það er gert á kostnað neytenda og alþýðu þessa lands. Með þeim verða tennurnar dregnar úr Samkeppniseftirlitinu og það veikt til muna. Það yrði mikil afturför. Því er oft haldið fram að strangar reglur á þessu sviði séu atvinnulífinu mjög til vansa. Þetta er rangt. Öflugt eftirlit á þessum vettvangi er aðeins þeim til trafala sem best þrífast í fákeppnisumhverfi. Öflugt eftirlit er ekki síður til hagsbóta litlum og meðalstórum fyrirtækjum enda eru það þau fyrirtæki sem oftast þurfa að leita til Samkeppniseftirlitsins til að ryðja úr vegi hindrunum á mörkuðum. Þar að auki hefur það sýnt sig að virk og heilbrigð samkeppni skilar fyrirtækjum á markaði miklu meiru en fákeppnin. Það er því beinlínis atvinnulífinu til bóta að hafa öflugt Samkeppniseftirlit en ekki öfugt.

Höfundur er lögmaður og sérfræðingur í samkeppnisrétti




Skoðun

Sjá meira


×