Innlent

Kristján nýr stór­meistari hjá Frí­múrunum

Atli Ísleifsson skrifar
Húsnæði Frímúrarareglunnar í Bríetartúni.
Húsnæði Frímúrarareglunnar í Bríetartúni. Já.is
Kristján Þórðarson augnlæknir hefur verið valinn nýr stórmeistari Frímúrarareglunnar á Íslandi. Hann tekur við stöðunni af Vali Valssyni, fyrrverandi bankastjóra, sem verið hefur stórmeistari Frímúrarareglunnar frá 2007.

Í tilkynningu frá Frímúrunum hefur Kristján á undanförnum árum gegnt embætti kanslara reglunnar, en hann gekk í raðir Frímúrara árið 1984.

„Kristján er fæddur 5. júlí 1950. Eiginkona hans er Guðrún G. Þórarinsdóttir líffræðingur á Hafrannsóknarstofnun. Börn þeirra eru: Guðlaug Þóra, Unnur Ýr, Þórður Örn og Þórarinn Már.

Innsetning Kristjáns Þórðarsonar í embætti Stórmeistara verður laugardaginn 26. október.

Frímúrarareglan á Íslandi er sjálfstæð samtök karlmanna úr öllum starfsgreinum þjóðfélagsins. Hún leitast við að efla hjá félögum sínum sjálfsþekkingu, umburðarlyndi, góðvild og náungakærleika,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×