Erlent

Á annað hundrað látnir vegna flóða á Ind­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Ástæður flóðanna eru miklar rigningar sem staðið hafa linnulaust síðan á föstudag.
Ástæður flóðanna eru miklar rigningar sem staðið hafa linnulaust síðan á föstudag. Getty
Rúmlega hundrað eru látnir vegna mikilla flóða sem nú eru í indversku héruðunum Uttar Pradesh og Bihar.

Samgöngur eru í algjörum lamasessi og rafmagnslaust er víða, spítalar, skólar og aðrar opinberar stofnanir eru lokaðar og er óttast að tala látinna muni hækka til muna.

Einna verst er ástandið í höfuðborginni Patna í Bihar-héraði þar sem vatnsmagnið er þvílíkt að íbúar ferðast um götur borgarinnar á bátum.

Ástæður flóðanna eru miklar rigningar sem staðið hafa linnulaust á Indlandi síðan á föstudag og niðurföll á svæðinu hafa engan veginn haft undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×