Innlent

Með þrjá poka af fíkni­efnum innan­klæða

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli.
Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli. Vísir/vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum handtók nýverið erlendan karlmann á Keflavíkurflugvelli eftir að tollverðir höfðu fundið fíkniefni í fórum hans.

Maðurinn var með efnin innanklæða og lagði lögregla hald á þau. Að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar var maðurinn með þrjá poka af kannabisefnum, amfetamíni og metamfetamíni á sér. Var hann færður til skýrslutöku á lögreglustöð.

Auk þess haldlagði lögregla slatta af kannabiste sem tollgæslan fann hjá ferðamanni þegar hann kom til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×