Erlent

Fimm látnir eftir rútu­slys á Nýja-Sjá­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Slysið varð á vegi á Norðurey, nærri bænum Rotorua.
Slysið varð á vegi á Norðurey, nærri bænum Rotorua. AP
Fimm eru látnir og sex slasaðir eftir að rúta valt á þjóðvegi á Nýja-Sjálandi í nótt. Meirihluti farþega voru kínverskir ferðamenn að því er fram kemur í frétt Reuters.

Slysið varð á vegi á Norðurey, nærri bænum Rotorua, sem er vinsæll viðkomustaður kínverskra ferðamanna. Alls voru 27 manns í rútunni, en hún valt yfir á öfugan vegarhelming.

Haft er eftir lögreglu að unnið sé með kínverskum yfirvöldum að því að bera kennsl á hina látnu og að komast í samband við aðstandendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×