Skoðun

Bana­til­ræði við ís­lenska sauð­fjár­bændur – 2 ára gamalt kjöt flutt eins langt og hægt er

Ásta F. Flosadóttir skrifar
Eitthvað hafa kaupmenn lítið borgað fyrir þetta. En það er á hreinu hverjir fá að borga; neytendur munu greiða þetta dýru verði og við öll á endanum því þetta er ekkert annað en banatilræði við íslenska sauðfjárbændur. 2 ára gamalt kjöt, flutt eins langt að og hægt er með tilheyrandi kolefnisfótspori. Korter í að sláturtíð hefjist og enn nóg til af hryggjum í landinu.

Fíflagangurinn er orðin alveg yfirgengilegur. Forsmekkurinn af því sem koma skal þegar blautir draumar Félags stórkaupmanna (úlfurinn í þeirri sauðagæru sem kallað er „Samtök atvinnurekenda“) rætast. Þeir strjúka á sér belginn og hlakka yfir framtíðinni, framtíð fullri af hræódýrri, eldgamalli landbúnaðarvöru, fluttri inn í skjóli ístöðulausra pólitíkusa og seld almenningi í landinu dýrum dómum. Þá aldeilis verður hægt að græða á daginn og grilla rusl á kvöldin.

En sauðfjárbændum er ekki hlátur í hug. Það er engum skemmt að horfa á lífstarf sitt og afkomu tætta niður til að púkarnir á verslunarfjósbitunum geti fitað sig enn frekar, allt á kostnað sauðfjárbænda, neytenda og landsbyggðanna. Nú reynir á Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra að gefa ekki eftir þá litlu tollvernd sem við þó eigum til.

Og þið sláturleyfishafar; fyrir löngu síðan ættum við bændur að vera búin að lóga ykkur eins og hverri annarri vanþrifakind. Byggja upp úr rústunum sölusamtök sauðfjárbænda. Sölusamtök sauðfjárbænda með MS sem fyrirmynd. Það er komin tími til að við náum vopnum okkar og brjótumst undan ægivaldi verslunarinnar, ægivaldi sem er engum til hagsbóta og neytendum hvað síst.

Kveðja úr heyskapnum, hér er verið að leggja drög að lambakjötsframleiðslu ársins 2020, við vinnum langa vinnudaga í góðu sumarveðri, öflum góðra heyja svo fólkið í landinu geti grillað gott kjöt í góðu veðri næsta sumar. Veljum íslenskt og leyfum Andrési og félögum að sitja einum að tveggja ára gömlu hryggjunum sínum.

Verði þeim að vondu.

Höfundur er sauðfjárbóndi á Höfða I. Pistillinn birtist fyrst á 641.is




Skoðun

Sjá meira


×