Leikjavísir

Bein út­sending: Heims­meistara­mótið í Fortni­te

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hinn eftirsótti heimsmeistarabikar í Fortnite. Á myndina vantar þær 360 milljónir króna sem sigurvegarinn í einstaklingsflokki hlýtur.
Hinn eftirsótti heimsmeistarabikar í Fortnite. Á myndina vantar þær 360 milljónir króna sem sigurvegarinn í einstaklingsflokki hlýtur. Getty/Steven Ryan
Heimsmeistaramótinu í fjölspilunartölvuleiknum Fortnite verður ýtt úr vör í New York í dag. Beina útsendingu frá mótinu má nálgast hér að neðan.

Veitt eru formleg verðlaun í tveimur flokkum; tvíliðaleik og einstaklingsflokki. Verðlaunaféð hleypur á milljörðum króna.

Keppnin í tvíliðaleik fer fram á morgun, laugardag, og stendur yfir fram á kvöld. Einstaklingskeppnin fer svo fram á sunnudag og verður því heimsins besti Fortnite-spilari krýndur á sunnudagskvöld.

Sjá einnig: Fortnite-kappar bítast um hundruð milljóna

Formleg dagskrá hefst þó í dag með tveimur dagskrárliðum. Átta, fjögurra manna lið munu fyrst kljást á óhefðbundnum brautum (e. Creative Game Mode) áður en 50 frægir Fortnite-kappar og 50 atvinnumenn leiða saman hesta sína í því sem kallað er Celebrity Pro-Am.

Meðal þeirra sem munu leika listir síðar í síðarnefnda dagskrárliðnum eru keppendurnir Ninja og Marshmello, sem og Airwaks og RL Grime.

Útsending frá mótinu hefst núna klukkan 16:15 og má fylgjast með henni hér að neðan. Nánar má fræðast um mótið hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×