Lífið

Martraðarkennd stikla fyrir Cats sem gerir fólk afhuga köttum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hin margverðlauna Judy Dench fer með eitt aðalhlutverkanna. Það fer henni ekkert sérstaklega vel að vera köttur, ekki frekar en öðrum leikurum myndarinnar.
Hin margverðlauna Judy Dench fer með eitt aðalhlutverkanna. Það fer henni ekkert sérstaklega vel að vera köttur, ekki frekar en öðrum leikurum myndarinnar. skjáskot
Kvikmyndaáhugafólk átti margt erfitt með að festa svefn í nótt eftir að stiklunni fyrir endugerð söngvamyndarinnar sígildu Cats var laumað út í skjóli nætur í gærkvöld.

Varla er hægt að tala um það að myndin skarti einvalaliði leikara; eins og Judy Dench, Ian McKellen, Idris Elba, Taylor Swift, Jennifer Hudson og James Corden, einfaldlega vegna þess að þeim hefur, með „aðstoð“ tölvutækninnar, verið stökkbreytt í einhvers konar matraðrarkennda mannkattablöndu.

Cats-myndarinnar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, ekki aðeins vegna vinsælda söngleiks Andrew Lloyd Webber eða leikaraliðsins heldur er myndinni jafnframt leikstýrt af Tom Hooper. Hann á nokkrar þekktar undir belti; eins og Les Misérables, the Danish Girl og The Kings Speech en sú síðastnefnda skilaði honum Óskarsverðlaunum fyrir bestu leikstjórn.

Aðstandendur myndarinnar vona því eflaust að leikstjórnarhæfileikar Hoopers muni draga athygli frá útliti aðalhetjanna, kattanna sem myndin dregur nafn sitt af. Það mun þó reynast þrautin þyngri ef marka má fyrstu viðbrögð kvikmyndaáhugafólks.

Það hefur ýmislegt út á kettina að setja. Til að mynda séu þeir allt of litlir en í einu atriði í stiklunni má sjá ketti dansa ofan á uppádekkuðu borði sem þykir kristalla fráleit stærðarhlutföllin. 

Að sama skapi furða þeir sig á því að læðurnar eru með brjóst en ekki spena, skemmtikrafturinn Margrét Erla Maack spyr sig jafnframt hvar „tillarnir“ eru á fressköttunum. Ekki bæti heldur úr skák að svo virðist vera sem sumir kattanna gangi um í kattafeldum - sem þeir hafa þá væntanlega fláð af öðrum köttum.

Því er það mat margra að líklega hefði verið gáfulegra að láta leikarana einfaldlega klæðast kattagervum í stað þess að umbreyta þeim í þessi goðafræðilegu ófreskjur. Það hafi ætíð verið gert þegar Cats hefur verið sett á fjalirnar, allt frá frumsýningu þess á West End í Lundúnum árið 1981.

Aðdáendur vona því að Hooper og félagar muni grípa í taumana og gera það sama og aðstandendur myndarinnar Sonic the Hegdgehog gerðu eftir viðlíka útreið á samfélagsmiðlum. Eftir að fyrstu myndirnar af bláa broddgeltinum litu dagsins ljós kom fram hávær krafa um að honum yrði breytt, enda álíka ógeðfelldur og kettirnir í Cats, og var fallist á kröfuna innan örfárra daga frá frumsýningu fyrstu stiklunnar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×