Lífið

A$AP Ferg í fót­snyrtingu með Vogu­e

Sylvía Hall skrifar
Rapparinn gerir vel við sig.
Rapparinn gerir vel við sig. Skjáskot
Vogue fékk að fylgja eftir rapparanum A$AP Ferg í sólarhring nú á dögunum og geta því aðdáendur rapparans fengið að fylgjast með því hvernig hefðbundinn sólarhringur í lífi hans lítur út.

Meðal þess sem rapparinn gerði með Vogue var að kíkja í fótsnyrtingu, máta nýtt glingur og hjóla um götur Harlem en þar ólst hann upp. Hann talar um áhuga sinn á hjólreiðum og segist fá innblástur í hverfinu sínu.

A$AP Ferg, sem heitir réttu nafni Darold D. Brown Ferguson Jr. er þrítugur en hann byrjaði rappferilinn aðeins nítján ára gamall.

Hér að neðan má sjá sólarhring með A$AP Ferg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×