Tónlist

GÓSS sendir frá sér sína fyrstu breið­skífu og boðar tón­leika­ferða­lag í sumar

Sylvía Hall skrifar
Margar helstu dægurlagaperlur þjóðarinnar er að finna á breiðskífunni.
Margar helstu dægurlagaperlur þjóðarinnar er að finna á breiðskífunni. GÓSS
Tríóið GÓSS hefur sent frá sér breiðskífuna Góssentíð sem inniheldur tíu lög. Sveitin samanstendur af þeim Sigurði Guðmundssyni, Sigríði Thorlacius og Guðmundi Óskari en nafn sveitarinnar er myndað úr upphafstöfum þeirra.

Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson eru landsmönnum vel kunnug og hafa lengi verið á meðal dáðustu söngvara þjóðarinnar. Guðmundur Óskar er einn fremsti bassaleikari landsins og hefur leikið með fjölmörgum hljómsveitum. Þá hefur hann einnig starfað sem upptökustjóri.

Sveitin varð til sumarið 2017 en þau þekkjast vel, Guðmundur Óskar og Sigurður eru bræður og þá hafa Guðmundur og Sigríður starfað saman í hljómsveitinni Hjaltalín. Þau hafa áður unnið saman í mismunandi verkefnum og því má segja að samstarf þeirra þriggja hafi verið nokkuð fyrirsjáanlegt.





Upptökur fóru fram í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ og var ákveðið að taka fyrir margar vinsælustu dægurlagaperlur þjóðarinnar og má þar helst nefna Ó, blessuð vertu sumarsól, Sólskinsnætur og Draumaprinsinn. 

Sveitin mun fylgja útgáfunni eftir með tónleikahaldi víða um landið en hér að neðan má sjá hvar og hvenær sveitin mun koma fram.

Miðvikudagur 3. júlí - Hafnarfjörður, Bæjarbíó

Fimmtudagur 4. júlí - Vestmannaeyjar, Alþýðuhúsið

Föstudagur 5. júlí - Vík, Víkurkirkja

Laugardagur 6. júlí - Sólheimar í Grímsnesi, Menningarveisla Sólheima

Laugardagur 6. júlí - Þórsmörk, Básar

Sunnudagur 7. júlí - Hvolsvöllur, Midgard

Föstudagur 19. júlí - Borgarfjörður, Brúarás

Laugardagur 20. júlí - Akranes, Gamla Kaupfélagið

Sunnudagur 21. júlí - Þorlákshöfn, Hendur í höfn






Fleiri fréttir

Sjá meira


×