Erlent

Johnson hótar því að draga Bretland samningslaust úr ESB

Kjartan Kjartansson skrifar
Boris Johnson er talinn sigurstranglegur í leiðtogavali Íhaldsflokksins. Hann yrði þá næsti forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson er talinn sigurstranglegur í leiðtogavali Íhaldsflokksins. Hann yrði þá næsti forsætisráðherra Bretlands. Vísir/EPA
Boris Johnson, sem er líklegastur til að verða næsti forsætisráðherra Bretlands, segist vera full alvara með því að hann muni draga landið úr Evrópusambandinu án samnings náist ekki nýtt samkomulag um útgöngusáttmála í haust.

Eins og sakir standa á Bretland að ganga úr Evrópusambandinu 31. október. Johnson segist í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC ætla að nýta hluta af samkomulagi Theresu May, fráfarandi forsætisráðherra, við ESB en sækjast eftir nýjum samningi við evrópska ráðamenn.

„Heit mitt er að ganga úr ESB á hrekkjavöku 31. októkber,“ segir Johnson sem er með pálmann í höndunum í leiðtogavali Íhaldsflokksins um þessar mundir. Fullyrti hann að fjöldi tæknilegra útfærslna væri til sem gæti komið í veg fyrir hörð landamæri á mörkum Norður-Írlands og Írlands.

Fram að þessu hafa fulltrúar Evrópusambandsins hafnað því að semja aftur um útgönguna við Breta. Johnson segist ekki vilja útgöngu án samnings en að nauðsynlegt væri að halda möguleikanum á lofti til að fylgja kröfum Breta eftir.

„Leiðin til að fá vini okkar og samstarfsfólk til að skilja hversu alvara okkur er óttast ég að sé að láta af uppgjöfinni og neikvæðninni sem hefur umlukið okkur í mikilli þoku svo lengi og að búa okkur undir WTO eða niðurstöðu án samnings af sjálfstrausti og alvöru,“ sagði Johnson við BBC og vísaði þar til útgöngu án samnings þar sem viðskipti milli Bretlands og ESB færu fram samkvæmt reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO).

Johnson, sem mælist enn sem komið er með öruggt forskot á Jeremy Hunt, utanríkisráðherra, í skoðanakönnunum fyrir leiðtogaval Íhaldsflokksins, hefur ekki tjáð sig opinberlega um atvik þar sem lögregla var kvödd til að heimili hans og kærustu hans í síðustu viku. Nágrannar hringdu á lögreglu vegna ótta um öryggi konu þar sem háreisti barst frá íbúð Johnson.

„Ég tala ekki um hluti sem koma fjölskyldu minni við, ástvinum mínum. Það er mjög góð ástæða fyrir því. Það er ef þú gerir það,, dregur þau inn í hluti þá er það virkilega ekki sanngjarnt gegn þeim á sinn hátt,“ sagði Johnson í viðtalinu.


Tengdar fréttir

„Ekki vera heigull, Boris“

Jeremy Hunt utanríkisráðherra Bretlands og leiðtogaefni Íhaldsflokksins kallaði eftir því að keppinautur hans í leiðtogakjörinu, Boris Johnson, skorist ekki undan því að mæta í kappræður í sjónvarpssal nú í vikunni. Þá sagðist Hunt ekki myndu gagnrýna Johnson vegna lögregluútkalls að heimili þess síðarnefnda á föstudag.

Lögregla kölluð að heimili Boris Johnson

Lögreglan í London var kölluð að heimili Boris Johnson, sem nú tekur þátt í leiðtogaslag Íhaldsflokksins. Lögreglan svaraði kalli nágranna sem heyrði Johnson og sambúðarkonu hans rífast.

Nágranninn sem hringdi á lögregluna stígur fram og segir sína hlið

Maðurinn sem hringdi í lögregluna vegna rifrildis Boris Johnson og Carrie Symsonds, sambýliskonu hans, hefur stigið fram í viðtali við Guardian til þess að segja sína hlið á málinu. Hann hefur mátt þola áreiti vegna málsins en hann segist aðeins hafa hringt á lögregluna vegna þess að hann óttaðist um velferð nágranna sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×