Viðskipti innlent

Losa sig við áreitisvörnina til að fjölga körlum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Á hverjum degi opnast fyrir spjalltengingu við einn notanda sem hverfur svo á miðnætti. Eina leiðin til að halda spjallinu gangandi eftir miðnætti er ef báðir aðilar hafa valið að framlengja spjallið.
Á hverjum degi opnast fyrir spjalltengingu við einn notanda sem hverfur svo á miðnætti. Eina leiðin til að halda spjallinu gangandi eftir miðnætti er ef báðir aðilar hafa valið að framlengja spjallið. skjáskot
Aðstandendur íslenska stefnumótaforritsins The One telja að í upphaflegri útgáfu forritsins hafi verið að finna of stóra hindrun fyrir karlmenn. Af þeim sökum hefur verið tekin ákvörðun um að karlmenn þurfi ekki lengur á boðslykli að halda til að nota forritið.

The One var ýtt úr vör í síðustu viku. Í forritinu fá notendur úthlutaðri einni manneskju á dag en það eina þeir sem sjá um hinn einstaklinginn er ein mynd, fornafn og fjarlægð frá notandanum. Notendur hafa svo til miðnættis til að spjalla saman og kynnast. Á miðnætti hverfur svo manneskjan að eilífu nema báðir aðilar vilji framlengja spjallið.

Mikill kynjahalli hefur verið á forritinu frá fyrsta degi. Konur hafa verið langtum fleiri, þær voru þannig þrefalt fleiri en karlar á forritinu á mánudag, og segja aðstandendur The One að fyrir vikið hafi spjalltengingar oft orðið frekar kómískar. Ástæðan sé meðal annars mikill aldursmunur notenda.

Upphaflega þurftu allir karlmenn að fá boðslykil frá konu úr forritinu, en það var gert til að minnka áreiti í garð kvenna að sögn aðstandenda The One. Þessi boðslykill er sagður ein helsta ástæða þess að illa hafi gengið að fjölga körlum á forritinu. Því hafi verið tekin ákvörðun um að fleygja lyklinum.

„Þó að fjöldi niðurhala frá karlmönnum hafi aukist töluvert undanfarið þá stendur boðslykillinn enn í vegi fyrir því að stór hluti karlmanna geti byrjað að nota appið. Forsvarsmenn The One hafa því ákveðið að fara aðra leið til að fá konur til að staðfesta karlmenn á appinu, en eftir hvert spjall við nýja notendur sem á sér stað eru konur beðnar um að láta vita hvort nokkuð áreiti hafi átt sér stað,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum The One.

Því geta allir sótt forritið t.d. hér að neðan, og byrjað að spjalla, en gerist einhver uppvís að áreiti og það tilkynnt dettur viðkomandi notandi út.

„Eftir að hafa fengið töluverða endurgjöf frá notendum, rýnt í tölurnar og ráðfært okkur við fjölda fólks, höfum við ákveðið að fara þessa leið og segja skilið við boðslyklana að sinni. Við teljum þessa aðferð heilnæmari og líklegri til þess að skila tilætluðum árangri án þess að mismuna neinum,” er haft eftir Davíði Erni Símonarsyni, framkvæmdastjóra The One, í tilkynningunni.

The One er komið út í App Store og á Google Play og er frítt fyrir alla. Hægt er að nálgast nánari leiðbeiningar á heimasíðu The One.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×