Golf

Tiger snýr aftur á Pebble Beach

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Tiger er klár í slaginn.
Tiger er klár í slaginn. vísir/getty
Tiger Woods hefur leik á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi í dag á kunnuglegum slóðum, Pebble Beach golfvellinum í Kaliforníu, þar sem hann vakti heimsathygli sem 25 ára kylfingur árið 2000. Tiger sem er einn besti kylfingur allra tíma vantar einn sigur til að jafna met Sam Snead yfir flesta sigra á PGA-mótaröðinni (82).

Í ár eru nítján ár liðin síðan Tiger vann þriðja risatitil sinn á Pebble Beach þegar hann vann mótið með slíkum yfirburðum að annað eins hefur varla sést. Tiger var sá eini sem kom í hús að mótinu loknu undir pari vallarins og var með fimmtán högga forskot á næsta kylfing. Það reyndist kveikja í Tiger sem vann næstu þrjú risamót og var því handhafi allra risatitlanna á sama tíma.

Einn helsti keppinautur Tiger er Brooks Koepka sem hefur unnið Opna bandaríska meistaramótið undanfarin tvö ár. Með sigri í ár getur Koepka orðið annar maðurinn í 119 ára sögu mótsins sem vinnur þrjú ár í röð.

Tiger spilar með Jordan Spieth og Justin Rose fyrstu tvo dagana. Útsending frá mótinu hefst á Stöð 2 Golf klukkan 19.00 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×