Innlent

Lagt til að ævintýrakonan Ída Jónasdóttir fái ríkisborgararétt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Reikna má með 32 nýjum íslenskum ríkisborgurum innan tíðar.
Reikna má með 32 nýjum íslenskum ríkisborgurum innan tíðar. vísir/vilhelm
Allsherja- og menntamálanefnd hefur lagt til að 32 einstaklingum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Frumvarp til laga svo hljóðandi hefur verið lagt fyrir Alþingi. Má gera ráð fyrir að frumvarpið verði samþykkt.

Meðal þeirra sem lagt er til að fái ríkisborgararétt er Ída Jónasdóttir Herman sem er á 94. aldursári. Ída fékk fyrst íslenskra kvenna leyfi til að giftast bandarískum hermanni. Hún trúlofaðist honum eftir 48 klukkustunda kynni.

Ída var til umfjöllunar í heimildarmynd Ölmu Ómarsdóttur og Viktoríu Hermannsdóttur í ríkissjónvarpinu um páskana. Hún lætur aldurinn ekki stöðva sig í að láta drauma verða að veruleika. Í fyrrasumar fór hún í svifvængjaflug, ísklifur og renndi sér í zip-lining.

„Ég er næstum hundrað ára. En frænka mín varð eldri en hundrað ára, þannig að ég á mörg ár framundan,“ sagði Ída.

„Þannig að ég verð að skipuleggja alls konar skemmtilega hluti til að sjá og upplifa, vegna þess að kannski á ég tíu ár eftir ólifuð. Ef ekki, þá það, en ef ég á tíu ár eftir þá ætla ég ekki að sóa þeim.“

Þá er að finna fólk á listanum frá Argentínu, Bandaríkjunu, Kanada, Rússlandi og Brasilíu svo fátt eitt sé nefnt.

Lagt er til að eftirfarandi fólki verði veittur ríkisborgararéttur:

1. Agnieszka Józefina Hudzik, f. 1984 í Póllandi.

2. Alexander Kolesnyk, f. 1981 í Úkraínu.

3. Anu Junburom, f. 1955 í Taílandi.

4. Birgir Hannes Rypkema, f. 1988 á Íslandi.

5. Claudia Dahan Pétursson, f. 1960 í Bandaríkjunum.

6. Cloé Lacasse, f. 1993 í Kanada.

7. Elena Nesterova, f. 1977 í Rússlandi.

8. Elias Gastao Cumaio, f. 1998 í Mósambík.

9. Ilhan Erkek, f. 1965 í Tyrklandi.

10. Irene Anne Stringer-Maas, f. 1957 í Bandaríkjunum.

11. Ivan Nesterov, f. 1977 í Rússlandi.

12. Ída Jónasdóttir Herman, f. 1925 á Íslandi.

13. Jesse John Van Hove, f. 1987 í Kanada.

14. John J. Frantz, f. 1930 í Bandaríkjunum.

15. Jón Arthur Ferrier, f. 1958 á Íslandi.

16. Julian Mariano Burgos, f. 1970 í Argentínu.

17. Lucimara Aparecida Da Silva, f. 1977 í Brasilíu.

18. Margrét Ann Thors, f. 1987 í Bandaríkjunum.

19. Marin Duangmadan, f. 1984 í Taílandi.

20. Maxim Leonidovich Petrov, f. 1979 í Rússlandi.

21. Michael David Kowalewski, f. 1965 í Bandaríkjunum.

22. Miodrag Stankovic, f. 1967 í Serbíu.

23. Olivia Marie Harper, f. 1988 í Bandaríkjunum.

24. Patricia Da Silva Araujo, f. 1984 í Brasilíu.

25. Patrycja Natalia Urbanska, f. 1995 í Póllandi.

26. Petur Sigfusson Williams, f. 1948 á Íslandi.

27. Rafaela M. Santos Gomes Teixeira, f. 1986 í Brasilíu.

28. Regina Vaiciuniené, f. 1975 í Litháen.

29. Regína Franziska Heincke, f. 1963 í Svíþjóð.

30. Sebastian Marcin Górka, f. 1976 í Póllandi.

31. Soukaina Nigrou, f. 1990 í Marokkó.

32. Tanit Amandine Karolys Rodriguez, f. 1988 í Ekvador.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×