Heimsmeistararnir auðveldlega í 16-liða úrslitin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Carli Lloyd
Carli Lloyd vísir/getty
Bandaríkin fóru auðveldlega inn í 16-liða úrslit HM kvenna með 3-0 sigri á Síle í dag.

Ríkjandi heimsmeistararnir hvíldu nokkra lykilleikmenn í leiknum fyrir lokaleik riðlakeppninnar, úrslitaleik um efsta sætið gegn Svíum.

Carli Lloyd var ekki ein af þeim sem fékk hvíld og skoraði hún fyrsta mark þeirra bandarísku eftir aðeins 11 mínútur. Með því varð hún fyrst kvenna til að skora í sex leikjum í röð á HM.

Julie Ertz tvöfaldaði forystuna og Lloyd bætti við sínu öðru marki áður en flautað var til hálfleiks.

Í seinni hálfleik gat Lloyd tryggt sér þrennuna en hún brenndi af vítaspyrnu.

Lokatölur 3-0 og Bandaríkin sitja ásamt Svíum í efstu tveimur sætum riðilsins með sex stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira