Skoðun

Vest­ur­bær­inn situr hljóður þegar kemur að kyn­þátt­aníði

Logi Pedro skrifar
Undanfarnar vikur hafa fjölmiðlar fjallað mikið um ummæli Björgvins Stefánssonar og kynþáttaníð sem hann lét falla í beinni útsendingu á vefmiðlinum Haukar TV. Óþarfi er að hafa þau ummæli eftir honum en fyrir áhugasama er tiltölulega auðvelt að finna þau. Aganefnd KSÍ tók málið fyrir og dómur féll í síðustu viku - 5 leikja bann.

Þetta mál allt saman er merkilegt og hægt er að rýna mikið í það, enda vakti þetta upp mikil viðbrögð. Það sem kemur undirrituðum þó helst á óvart í þessu máli eru viðbrögð Knattspyrnufélags Reykjavíkur, sem og stuðningsmanna þeirra.

KR fór fram á það að aganefnd KSÍ vísaði málinu frá og að leikmanninum yrði ekki gerð refsing. Eins áfrýjaði KR dómnum sem féll, en áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti hins vegar dóminn.

Ummælin eru eins og þau eru og við erum að berja dauðan hest ef við ræðum þau frekar. Óafsakanlegt kynþáttaníð sett fram í misheppnaðri kímni. Eins er það skýrt samkvæmt reglum KSÍ að við broti þar sem kynþáttaníð kemur fram er refsing, að lágmarki, 5 leikja bann.

En einhverja hluta vegna reyna KR-ingar hins vegar að komast hjá því að taka út refsingu, og Rúnar Kristinsson þjálfari félagsins talar alvarleika brotsins og hugsanlegar afleiðingar niður í viðtali við fjölmiðla nokkrum dögum eftir atvikið. Hann talar um fordæmi sem aganefnd KSÍ hefur sett. Eins tekur hann þá ákvörðun að spila leikmanninn í fyrsta leik eftir atvikið. Enginn skal efast um það að Rúnar Kristinsson er fínn náungi, fyrrum landsliðshetja og leiðtogi. Hann baðst afsökunar á ummælunum fyrir hönd félagsins, rétt eins og KR, en eftirfylgnin var þó önnur. Og þvílíkt sem þjálfara KR, sem og félaginu, fatast flugið í þessu máli.

Umræðan um það hvernig KSÍ tæki á atvikinu fór einhverra hluta vegna að snúast um fordæmi sem aganefnd KSÍ hafði sett í fyrri dómum. Eins og það væri sjálfsagt að sleppa við refsingu á svona skýru broti, með tilliti til fyrri dóma. En verum skýr hérna: Allt tal um fordæmi aganefndar er þvættingur. Svona umbúðalaust kynþáttaníð hefur ekki komið fram síðustu ár í íslenskum fótbolta, og hvað þá dokúmenterað svona vel - orð fyrir orð á upptöku.

Það sem hefði verið fínt í þessu blessaða máli, sem hefði mátt afgreiða á einni viku, væri að taka ábyrgð á þessum ummælum. En að tala brotið niður, fara fram á enga refsingu og áfrýja svo dómnum er versta mögulega vegferð sem KR gat lagt í.

Eins vekur það furðu hversu litla gagnrýni stuðningsmenn KR hafa sett fram á sitt ástkæra félag. Hvernig getur það verið að allur vesturbærinn sofi og segi ekki neitt þegar að stórveldið þeirra stendur ekki í lappirnar gegn hatursorðræðu?


Tengdar fréttir

KR áfrýjar banni Björgvins

KR hefur áfrýjað leikbanninu sem Björgvin Stefánsson var dæmdur í af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í síðustu viku.




Skoðun

Sjá meira


×