Enski boltinn

Chelsea staðfestir brottför Sarri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Undir stjórn Sarri vann Chelsea Evrópudeildina.
Undir stjórn Sarri vann Chelsea Evrópudeildina. vísir/getty
Chelsea hefur staðfest að Maurizio Sarri snúi aftur til Ítalíu og taki við Juventus. Þetta kemur fram á heimasíðu Chelsea.

Sarri bað um að fá að fara frá Chelsea og félagið varð að ósk hans.

Ítalinn stýrði Chelsea í eitt tímabil. Undir hans stjórn vann liðið Evrópudeildina, lenti í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og komst í úrslit deildabikarsins.

Sarri tekur við Juventus af Massimiliano Allegri sem hætti eftir síðasta tímabil. Allegri gerði Juventus fimm sinnum að ítölskum meisturum.

Búist er við því að Frank Lampard taki við Chelsea af Sarri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×