Erlent

Netanyahu: Fylgjumst ekki aðgerðarlaus með kjarnorkuvopnaframleiðslu Írana

Sighvatur Jónsson skrifar
Forsætisráðherra Ísraels og Evrópuríki hóta að beita viðskiptaþvingunum ef Íranar halda sig ekki innan tilskilinna marka í kjarnorkuframleiðslu.

Íran hefur tilkynnt að landið fari yfir hámarksmagn af auðguðu úrani eftir tíu daga. Ef til þess kemur brjóta Íranar á bak aftur samkomulag sem ríkið gerði við fleiri kjarnorkuríki fyrir fjórum árum.

Í síðasta mánuði tilkynnti íranska kjarnorkumálastofnunin að framleiðsla á auðguðu úrani yrði fjórfölduð vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna gegn Íran. Í dag var tilkynnt að framleiðslan fari yfir hámark sem kveðið er á um í samkomulagi sem Íran og fleiri kjarnorkuríki gerðu árið 2015.

„Eftir að við förum fram yfir 300 kílógramma hámarkið verður hlutfall framleiðslu lágauðgaðs 3,67 prósenta úrans hærra,“ sagði Behrouz Kamalvandi, talsmaður írönsku kjarnorkumálastofnunarinnar.

Þessu hafa Íranar hótað eftir að Bandaríkjamenn sögðu sig frá samningnum á síðasta ári. Síðan þá hafa Evrópuríki reynt að koma í veg fyrir að kjarnorkusamningurinn verði að engu.

Auðgað úran er notað sem eldsneyti fyrir kjarnaofna og til framleiðslu kjarnorkuvopna.

Stjórnstöð í írönsku kjarnorkuveri.AP/Vahid Salem

Óvirkur kjarnaofn tekinn í gagnið aftur

Forsætisráðherra Ísraels brást við tilkynningu Írana í dag með þeim orðum að Ísraelar myndu ekki fylgjast aðgerðarlausir með kjarnorkuvopnaframleiðslu í Íran.

„Ef Íranar standa við hótanir sínar og brjóta kjarnorkusamninginn verður alþjóðasamfélagið þegar í stað að grípa til þeirra refsiaðgerða sem samþykktar voru fyrir fram, „afturhvarfsaðgerðanna“,“ sagði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels.

Pólitískar yfirlýsingar hafa gengið milli Bandaríkjamanna og Evrópuríkja annars vegar og Írans hins vegar í kjölfar árása á olíuskip í Ómanflóa nýlega.

Spenna milli ríkja fer vaxandi og fjölmiðlar segja líkur aukast á átökum við Persaflóa.

Íranska sjónvarpið sýndi í dag myndir af kjarnakljúfi sem talið var að hefði verið gerður óvirkur fyrir nokkrum árum. Talsmaður írönsku kjarnorkumálastofnunarinnar segir að hægt sé að hefja framleiðslu þar á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×