Formúla 1

Upphitun: Mercedes mætir enn sterkara til Kanada

Bragi Þórðarson skrifar
Mercedes mætir með nýjar vélar til Kanada
Mercedes mætir með nýjar vélar til Kanada Getty
Sjöunda umferðin í Formúlu 1 fer fram á Gilles Villenueve brautinni í Montreal um helgina. Brautin er í miklu uppáhaldi hjá ríkjandi heimsmeistara, Lewis Hamilton, því Bretinn hefur unnið þessa keppni alls sex sinnum.

Vinni Hamilton um helgina mun hann jafna met Michael Schumacher sem vann sjö sinnum í Kanada á sínum ferli.

Mercedes hefur verið algjörlega óstöðvandi þetta tímabil. Lélegasti árangur liðsins kom í Mónakó þegar Hamilton vann en Valtteri Bottas endaði þriðji. Í öllum öðrum mótum ársins hafa Mercedes bílarnir endað í fyrsta og öðru sæti.

Bæði Ferrari og Honda hafa uppfært vélar sínar fyrr á þessu tímabili í þeim tilgangi að minnka bilið í Mercedes.

Nú eru það hins vegar Mercedes sem mæta með uppfærða vél. Það lofar ekki góðu fyrir liðin sem eru að reyna að keppa við fimmföldu meistarana.

Brautin í Montreal er afar teknísk og krefst mikils afls, þess vegna mæta vélarframleiðendur yfirleitt með uppfærslur til Kanada.

Kappaksturinn verður ræstur af stað klukkan 18 á sunnudaginn. Hægt verður að fylgjast með æfingum, tímatökum og kappakstrinum í beinni á Stöð 2 Sport um helgina.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×