Golf

Tiger í rosalegum ráshóp á US Open

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger verður undir smásjánni á Pebble Beach.
Tiger verður undir smásjánni á Pebble Beach. vísir/getty
Það er vika í dag að US Open hefjist á Pebble Beach og ljóst að allra augu verða á Tiger Woods og hollinu hans.

Tiger mun spila með Jordan Spieth og Justin Rose fyrstu tvo dagana. Afar skemmtilegt og áhugvert holl.

Það eru komin 19 ár síðan Tiger vann þetta mót með heilum 15 högga mun og hann mætir fullur sjálfstrausts eftir að hafa unnið Masters í apríl. Tiger hefur aðeins tekið þátt í tveimur mótum eftir það.

Tiger komst ekki í gegnum niðurskurðinn á PGA-meistaramótinu í síðasta mánuði og leyndi sér ekki að hann var að glíma við meiðsli í því móti. Hvort hann sé búinn að jafna sig verður að koma í ljós. Líkami Tigers virðist þó ekki þola mikið álag lengur.

Brooks Koepka á titil að verja á US Open en hann hefur reyndar unnið mótið síðustu tvö árin og það væri einstakur árangur ef hann vinnur þriðja árið í röð.

Mótið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×