Innlent

Vonast til að frumvarp um hæfni kennara verði samþykkt í næstu viku

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Vísir/Vilhelm
Menntamálaráðherra vonast til að Alþingi samþykki í vikunni frumvarp um menntun og hæfni kennara. Kennurum án réttinda hefur fjölgað verulega á síðustu árum og er frumvarpið liður í aðgerðum til að bæta stöðu kennara.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er boðuð stórsókn í menntamálum. Með því er lögð áhersla á að efla menntun í landinu með hagsmuni nemenda, kennara og þjóðarinnar allra að leiðarljósi. Í sáttmálanum er tekið fram að bregðast þurfi við kennaraskorti í samstarfi ríkis og sveitarfélaga.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda. Markmið frumvarpsins er að tryggja að þeir sem sinni uppeldis-, kennslu-, og stjórnunarstörfum í leik-, grunn- og framhaldsskólum hafi menntun og hæfni í samræmi við störf þeirra og ábyrgð. Með frumvarpinu fá kennarar réttindi á öll skólastig.

„Við erum að leggja fram kennarafrumvarpið. Það lítur að því að nú fá kennarar réttindi á öll skólastig að því gefnu að þeir uppfylli ákveðna hæfni. Þetta er til þess fallið að styðja við starfsþróun og auka starfsöryggi. Við sjáum að kennurum án réttinda hefur verið að fjölga verulega, en með þessu frumvarpi mun það breytast. Þetta er framfaramál sem við erum mjög ánægð með. Ég hlakka til að sjá það verða að veruleika,“ sagði Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Verði frumvarpið að lögum opnast sá möguleiki að framhaldsskólakennarar geti kennt á grunnskólastigi, en eins og staðan er núna hafa þeir ekki leyfi til þess. Frumvarpið var unnið í samráði við kennaraforystuna og menntavísindasviði Háskóla Íslands.

„Það hefur verið mjög góð vinna. Ég er stolt af því hvernig allir hafa komið að því að styrkja þetta frumvarp og gera það að veruleika. Allsherjar og menntamálanefnd er núna að klára nefndarálit og svo geri ég ráð fyrir því að ég geti komið með það inn í þingið í næstu viku,“ sagði Lilja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×