Innlent

Ís­lendingarnir dæmdir í fangelsi í Ástralíu

Gunnar Reynir Valþórsson og Sylvía Hall skrifa
Ferðataskan sem annar Íslendinganna var gripinn með.
Ferðataskan sem annar Íslendinganna var gripinn með. Ástralska lögreglan
Tveir íslenskir karlmenn, þeir Helgi Heiðar Steinarsson og Brynjar Guðmundsson hafa verið dæmdir í fangelsi í Ástralíu fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Þeir voru handteknir við komu til Melbourne í nóvember síðastliðnum með mikið magn kókaíns í ferðatöskum sínum. Fundust efnin í fölskum botni í töskunum.  

Sjá einnig: Íslendingarnir í Ástralíu sjá fram á langa dóma

Helgi Heiðar fékk sex ára og þriggja mánaða dóm fyrir aðild sína að smyglinu en Brynjar fékk átta ár og þrjá mánuði að auki. Helgi getur sótt um reynslulausn að fjórum árum liðnum en Brynjar þarf að bíða í fimm ár uns hann á möguleika á því. Mennirnir hafa nú þegar setið 207 daga í varðhaldi.

Brynjar og Helgi Heiðar þekktust ekki en höfðu báðir samþykkt að vinna fyrir sömu glæpasamtökin til þess að greiða upp fíkniefnaskuldir. Þeir flugu frá Evrópu á sama tíma og áttu flug frá Ástralíu á sama degi.

Keypti hníf til þess að vernda fíkniefnin

Brynjar var handtekinn á flugvellinum við komuna til landsins en Helgi Heiðar var handtekinn á hóteli sínu. Þá fannst hnífur í fórum Helga Heiðars sem hann sagðist hafa keypt í landinu til þess að vernda fíkniefnin. 

Helgi var með eitt og hálft kíló af kókaíni í tösku sinni þegar hann var handtekinn og Brynjar var með tvö komma eitt kíló.

Við dómsuppkvaðningu sagði dómari að með tilliti til geðrænna vandamála mannanna, samvinnuvilja þeirra og fjarlægð frá fjölskyldu væri eðlilegt að gefa þeim vægari dóm en Brynjar er greindur með geðhvarfasýki og Helgi Heiðar þunglyndi.

Dómarinn í málinu sagði mennina ekkert tengjast fyrir utan sameiginlega „glæpaforingja“ þeirra. Þá kvað dómari á um að þeir verði sendir úr landi um leið og þeir losna en hvatti þá til betrunar.

„Þið eruð ungir menn núna. Þið verðið ekki svona ungir þegar þið hafið afplánað ykkar dóm.“


Tengdar fréttir

Íslendingarnir í Ástralíu sjá fram á langa dóma

Íslendingarnir tveir sem handteknir voru í Ástralíu grunaðir um stórfelldan innflutning á kókaíni hafa báðir játað sök í málinu. Þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi Victoria-sýslu í Melbourne í dag sagði dómarinn að ljóst væri að mennirnir tveir hefðu flutt kókaínið inn til Ástralíu sem burðardýr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×