Innlent

Hóteleigandi á Flúðum segir fleiri bókanir í sumar en í fyrra

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Margrét Runólfsdóttir, hóteleigandi, er bjartsýn á horfur ferðaþjónustunnar á Flúðum.
Margrét Runólfsdóttir, hóteleigandi, er bjartsýn á horfur ferðaþjónustunnar á Flúðum. Vísir/vilhelm
„Ég heyri ekki þennan barlóm. Ég get ekki sagt það,“ segir Margrét Runólfsdóttir, eigandi Icelandair Hotel Flúðir, um stöðuna í ferðaþjónustunni. Fleiri hafi bókað herbergi hjá henni fyrir sumarið en á sama tíma í fyrra.

Margrét ræddi um stöðuna í ferðaþjónustunni eins og hún blasir við henni. Hún var gestur í útvarpsþættinum Bítið á Bylgjunni. Í kjölfar gjaldþrots flugfélagsins WOW air og almenns samdráttar í ferðaþjónustunni hefur borið á svartsýni hjá hinum ýmsu ferðaþjónustuaðilum og margir sjá fram á lakari hag.

Það á alls ekki við um Margréti. Hún segist raunar ekki kannast við aðþrengda stöðu hjá kollegum sínum á Flúðum.

Á Flúðum er mikið um að vera og margt áhugavert að sjá á svæðinu. Margrét segir að flúðasveppirnir séu mikið aðdráttarafl, Gamla laugin á Flúðum sé vinsæl og Friðheimar hafi slegið í gegn hjá ferðamönnum.

Gamla laugin á Flúðum er vinsæll ferðamannastaður.Vísir/Anton Brink
„Veistu það, við kvörtum ekki. Þetta lítur rosalega vel út hjá okkur núna, alveg bara fram að jólum eins og staðan er í dag þannig að ég er bara björt sko. Það er meira heldur en í fyrra. Það eru fleiri bókanir og já, ég er bara rosa björt.“

Margrét segist þó greina ákveðna breytingu á þeim hópum sem sækja Ísland heim. Þannig komi í auknum mæli gestir frá Asíu og Bandaríkjunum.

Hún hefur starfað innan hótelbransans frá árinu 1998 og hefur því mikla reynslu í ferðaþjónustu. Á þessum árum hafi skipst á skin og skúrir og það sé ekkert nema eðlilegt. „Þetta er bara búið að vera upp og niður, alltaf en eins og ég segi núna í ár erum við bara kát.“

Það sé þó viðbúið að það komi einhver samdráttur í ljósi gífurlegs framboðs á gistirými. „Það má náttúrulega búast við því, er það ekki? Það er búið að vera rosa framboð. Þú keyrir ekki fram hjá bæ hérna hringinn öðruvísi en að það sé gisting og Airbnb.“


Tengdar fréttir

Næg eftirspurn eftir Íslandi en skortur á flugsætum

Ferðamálastjóri telur að samdráttur í ferðaþjónustu á þessu ári verði meiri en spáð hefur verið eða um fimmtán til tuttugu prósent. Þetta muni helst koma niður á landsbyggðinni. Eftirspurn eftir Íslandsferðum sé ennþá mikil en ekki sé nægilegt framboð af flugsætum.

Kalla eftir viðbrögðum stjórnvalda vegna samdráttar í ferðaþjónustu

Samdrátturinn í ferðaþjónustunni á þessu ári jafnast á við fimm loðnubresti að mati formanns Samtaka ferðaþjónustunnar. Hún segir afar brýnt að stjórnvöld bregðist við þessari grafalvarlegu stöðu með öflugu markaðsátaki. Ef ekkert verði aðhafst verði niðursveiflan í ferðaþjónustunni mun lengri en spáð hefur verið.

Sjö nýjar hótelbyggingar opna á næsta ári í Reykjavík og tólf á teikniborðinu

Búist er við að 800 ný hótelherbergi opni í Reykjavík á næsta ári. Þá eru tólf þróun með ríflega sextán hundruð herbergum. Gert er ráð fyrir að Marriott hótel opni í byrjun næsta árs. Borgarstjóri segir ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af samdrættinum í ferðaþjónustu. Mörg ný flugfélög hyggist fljúga til landsins á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×