Íslenski boltinn

Sá síðasti í stöðu Óla Jóh sagði upp störfum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, fylgist með leiknum við Blika í gær.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, fylgist með leiknum við Blika í gær. Vísir/Vilhelm
Valsmenn eru fyrstu Íslandsmeistararnir í átján ár sem tapa fjórum sinnum í fyrstu sex umferðunum.

Það er óhætt að titilvörn Valsmanna hafa byrjað illa en eftir 1-0 tap á heimavelli á móti Blikum í gær er Valsliðið aðeins með 4 stig í tíunda sæti deildarinnar og heilum 12 stigum á eftir toppliði ÍA.

Valsmenn hafa aðeins einu sinni komist yfir í fyrstu sex leikjum sínum í deildinni sumar (í eina sigurleiknum) og það hefur ekki hjálpað liðinu að spila þrjá leiki á heimavelli sínum því aðeins eitt stig af níu mögulegum hefur komið í hús á Hlíðarenda.  

Víkingur og ÍBV eru einu liðin sem hafa fengið á sig fleiri mörk en Valur í þessum sex umferðum og þau eru líka einu liðin sem eru neðar í töflunni en Hlíðarendaliðið.

Það þarf að fara næstum því tvo áratugi aftur í tímann til að finna svo marga tapleiki Íslandsmeistara í fyrstu sex umferðunum.

DV 27. júní 2001.Skjámynd/DV
Síðasti þjálfarinn sem var í stöðu Ólafs Jóhannessonar, þjálfara Vals í dag, var Pétur Pétursson sem byrjaði sumarið 2001 sem þjálfari KR. Leikurinn í sjöttu umferðinni hjá KR það sumar var reyndar sjöundi leikur tímabilsins hjá Vesturbæjarliðsins þar sem leik liðsins úr tíundu umferð var flýtt vegna Evrópukeppninnar.

Pétur hafði gert KR-liðið að Íslandsmeisturum sumarið 2000 en KR-ingar töpuðu fjórum sinnum í fyrstu sex umferðunum í byrjun Íslandsmótsins 2001.

Fjórða tapið hjá KR kom á móti Val á Hlíðarenda 25.júní 2001. Valur vann leikinn 4-2 eftir að hafa komist í 4-0. KR hafði áður tapað á móti Fylki (0-1), FH (0-2) og ÍBV (0-1). Færði leikurinn þýddi að KR var búið að mæta Fylkismönnum tvisvar á þessum tímapunkti en seinni leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

Það er samt munur á þessari byrjun og byrjun Valsliðsins í sumar því allir fjórir tapleikir KR í fyrstu sex umferðunum 2001 voru á útivelli.

Valsmenn hafa aftur á móti tapað þremur leikjum í röð á heimavelli sínum á Hlíðarenda ef við teljum bikarinn með.

Ólafur ætti að geta rætt þetta sumar við Pétur. Þeir þekkjast vel síðan að Pétur var aðstoðarþjálfari Ólafs hjá íslenska landsliðinu og þá er Pétur starfsmaður Vals í dag. Pétur þjálfar nefnilega meistaraflokk kvenna hjá Val.

Morgunblaðið 27. júní 2001.Skjámynd/Morgunblaðið
Fréttablaðið 27. júní 2001.Skjámynd/Fréttablaðið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×