Viðskipti innlent

Jóhann verður forstjóri Íslenskra verðbréfa

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Jóhann M. Ólafsson, nýr forstjóri Íslenskra verðbréfa
Jóhann M. Ólafsson, nýr forstjóri Íslenskra verðbréfa Íslensk Verðbréf
Jóhann M. Ólafsson, forstjóri og stofnandi Viðskiptahússins hefur verið ráðinn nýr forstjóri Íslenskra verðbréfa. Hann tekur við af Jóni Helga Péturssyni sem verður aðstoðarforstjóri.

Á vef Íslenskra verðbréfa segir jafnframt að nýtt skipurit hafi verið samþykkt fyrir félagið og verða tekjusviðin fjögur; eignastýring, miðlun, sérhæfðar fjárfestingar og fyrirtækjaráðgjöf.

Þessar hræringar tengjast kaupum Íslenskra verðbréfa á Viðskiptahúsinu, sem fyrst var greint frá undir lok síðasta árs. Öll skilyrði fyrir kaupunum eru nú uppfyllt  og segjast Íslensk verðbréf hafa gengið frá viðskiptunum í samræmi við kaupsamning sem gerður var í desember síðastliðinn.

Kaupin eru sögð ná til allra félaga innan samstæðu Viðskiptahússins sem sinna ráðgjöf og þjónustu, einkum í sjávarútvegi og tengdum greinum.

Íslensk verðbréf er eignastýringafyrirtæki með höfuðstöðvar á Akureyri og 18 starfsmenn. Viðskiptahúsið hefur frá árinu 1999 sérhæft sig í ráðgjöf til fyrirtækja í sjávarútvegi og tengdum greinum. Starfsstöð Viðskiptahússins er í Kópavogi og eru starfsmenn átta talsins.

Haft er eftir Sigurði Atla Jónssyni, stjórnarformanni Íslenskra verðbréfa, að markmiðið með kaupunum sé að skapa sérhæft fjármálafyrirtæki í eignastýringu, miðlun og ráðgjöf með sérstöðu í staðsetningu utan höfuðborgarsvæðisins og atvinnulífssérhæfingu. „Kaupin hafa í för með sér góðan ávinning fyrir landsbyggðirnar, viðskiptavini, starfsfólk og hluthafa,“ segir Sigurður Atli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×