Innlent

SUS fagnar nýrri þungunar­rofs­lög­gjöf: For­maðurinn eini ráð­herrann sem greiddi at­kvæði gegn frum­varpinu

Sylvía Hall skrifar
Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu þegar atkvæðagreiðsla fór fram fyrr í mánuðinum.
Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu þegar atkvæðagreiðsla fór fram fyrr í mánuðinum. Vísir/Vilhelm
Samband ungra sjálfstæðismanna hefur sent frá sér ályktun þar sem sambandið fagnar nýsamþykktu þungunarrofsfrumvarpi. Frumvarpið, sem heimilar þungunarrof til loka 22. viku meðgöngu, var samþykkt fyrr í mánuðinum.

Í ályktuninni segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið vörð um rétt einstaklinga til að bera ábyrgð og taka ákvörðun um eigið líf og oft leitt réttindabaráttu hópa sem hallar á í samfélaginu.

„Sérstaklega ber að hrósa þeim þingmönnum sem stóðu með þessu mikilvæga máli og festu í sessi sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama. Sú ákvörðun á skilyrðislaust heima hjá konunni sjálfri án aðkomu annarra,“ segir í ályktun stjórnarinnar.

Stuðningsmenn frumvarpsins fjölmenntu á áhorfendapalla Alþingis þegar atkvæðagreiðsla fór fram.Vísir/Vilhelm

Formaður flokksins eini ráðherrann sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu

Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði með frumvarpinu en það voru þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Kristján Þór Júlíusson. Þá tjáði Áslaug Arna sig um málið á Twitter þar sem hún lýsti yfir eindregnum stuðningi við frumvarpið. Hún sagði málið vera viðkvæmt en þegar öllu væri á botninn hvolft væri enginn hæfari til þess að taka þessa ákvörðun en konan sjálf. 





Átta þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu og voru tveir þingmenn fjarverandi, þar á meðal Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar- og dómsmálaráðherra sem hafði þó lýst yfir stuðningi við frumvarpið. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, var eini ráðherrann sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu.

Sjá einnig: Nær fordæmalaust að formaður stjórnarflokks greiði atkvæði gegn stjórnarfrumvarpi

Þegar Bjarni gerði grein fyrir atkvæði sínu sagði hann málið vera gríðarlega viðkvæmt en um leið mikilvægt. Við hvert álitamál sem hafi komið upp við frumvarpið hafi svarið alltaf verið kvenfrelsi.

„Mér finnst að kvenfrelsið skipti gríðarlegu miklu máli og á að vera meginþráður í meðferð þessara mála. En mér finnst samt að kvenfrelsið trompi ekki hvert einasta annað álitamál sem upp kemur í þessum efnum,“ sagði Bjarni í ræðu sinni.

Ályktun stjórnar SUS í heild sinni: 

Samband ungra sjálfstæðismanna(SUS) fagnar nýsamþykktu frumvarpi heilbrigðisráðherra um þungunarrof sem styður rétt kvenna til að taka sjálfar ákvörðun um að enda þungun fram til loka 22. viku meðgöngu. Sérstaklega ber að hrósa þeim þingmönnum sem stóðu með þessu mikilvæga máli og festu í sessi sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama. Sú ákvörðun á skilyrðislaust heima hjá konunni sjálfri án aðkomu annarra.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið vörð um rétt einstaklinga til að bera ábyrgð og taka ákvörðun um sitt eigið líf og oft leitt réttindabaráttu hópa sem á hallar í samfélaginu. Vinna við frumvarpið hófst árið 2016 í tíð Kristjáns Þórs Júlíussonar í heilbrigðisráðuneytinu og er fagnaðarefni að því hafi verið fylgt eftir og sé nú orðið að lögum.

Þungunarrof er aldrei auðveld ákvörðun og verður ekki einfaldari eftir því sem líður á meðgönguna. Ungir sjálfstæðismenn telja réttast að konan taki þessa ákvörðun sjálf.


Tengdar fréttir

Lilja gefur ekki upp afstöðu til þungunarrofs

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra vill ekki gefa upp afstöðu sína til þungunarrofsfrumvarpsins sem samþykkt var í fyrradag þar sem konum er gert kleift að rjúfa þungun á 22. viku meðgöngu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×