Innlent

Leggja til að þriðji orkupakkinn verði færður aftast á dagskrá þingsins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá þingfundi í gær þar sem þingmenn Miðflokksins ræddu þriðja orkupakkann.
Frá þingfundi í gær þar sem þingmenn Miðflokksins ræddu þriðja orkupakkann. vísir/vilhelm
Fjórir stjórnarandstöðuflokkar, Samfylkingin, Píratar, Viðreisn og Flokkur fólksins, leggja til að flokkarnir sem sæti eiga á þingi setjist nú að samningaborðinu og semji um afgreiðslu þeirra mála sem bíða á þingi.

Innleiðing þriðja orkupakkans verði færð aftast á dagskrá þingsins en flokkarnir leggja þetta til sem lausn á málþófi þingmanna Miðflokksins um þriðja orkupakkann.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, greinir frá tillögu flokkanna á Facebook-síðu sinni. Hann segir mörg gríðarlega mikilvæg mál bíða afgreiðslu og vandséð hvenær þau fái þinglega meðferð. Stjórnarmeirihlutanum hafi algjörlega mistekist að höggva á hnútinn.

„Undanfarnar vikur hefur staðið yfir málþóf níu þingmanna Miðflokksins um þriðja orkupakkann sem komið hefur í veg fyrir þinglega meðferð allra annarra mála.

Það er gagnrýnivert að mörg stór mál ríkisstjórnarinnar hafa komið allt of seint fram, þar á meðal innleiðing þriðja orkupakkans, auk þess sem enn er beðið eftir nýrri fjármálastefnu og breyttri fjármálaáætlun.

Mörg gríðarlega mikilvæg mál bíða afgreiðslu og vandséð hvenær þau fái þinglega meðferð.

Stjórnarmeirihlutanum hefur mistekist algjörlega að höggva á þennan hnút.

Undir liggja miklir hagsmunir almennings og ótækt annað en að þingmenn, hvar í flokki sem þeir standa, fái tækifæri til að sinna þessum verkefnum í þágu kjósenda af fullum krafti.

Því leggja eftirfarandi flokkar fram þá lausn að flokkarnir semji um afgreiðslu þeirra mála sem bíða og innleiðing þriðja orkupakkans verði færð aftast á dagskrá þessa þings,“ segir Logi á Facebook-síðu sinni en færsluna má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×